Það sem mönnum dettur í hug

Kanntu skemmtilegar sögur? Eða veistu um sniðug vídeó?
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11654
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Það sem mönnum dettur í hug

Póstur eftir Sverrir »

Þetta hefur svo sem sést hérna áður en er alltaf jafn skondið, þessi er að „tilkeyra“ þotumótorinn sinn með því að hafa hann dálítið ríkann!





Og þessi bjó sér til „mótor“ úr sultukrukku, Árni farðu varlega þær geta sprungið!

Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Árni H
Póstar: 1602
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Það sem mönnum dettur í hug

Póstur eftir Árni H »

Ég skal nota hjálm og gleraugu - sendi svo inn vídeó! Það verður samt að bíða vorsins, ég er ekki viss um hershöfðinginn samþykki svona tilraunir á eldhúsborðinu :)
Passamynd
Gaui
Póstar: 3836
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Það sem mönnum dettur í hug

Póstur eftir Gaui »

Tvær spurningar, vegna þess að ég veit litið um hárþurrkur (af augljósum ástæðum):

1. Þarf að tilkeyra þotumótora yfirleitt? Ég hélt að þeir væru smíðaðir af slíkri nákvæmni að slíkt væri óþarfi.

2. Gerir það eitthvert gagn að kveikja í því sem þeir sulla afturúr sér? Ég hélt að bruninn færi fram innan í þeim miðjum, en ekki fyrir aftan útblástursrörið.

En ég er nú svo vitlaus!

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11654
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Það sem mönnum dettur í hug

Póstur eftir Sverrir »

1. Nei þess þarf ekki, enda veldur sú athöfn jafnan mikilli kátínu. Reyndar eru meiri líkur á því að hann skemmi eitthvað með þessum æfingum sínum.

2. Já, ef kertið bilar(og maður er með gasstart) þá er hægt að redda sér með kveikjara, þrátt fyrir blástur í gegnum mótorinn þá er eldurinn ekkert að láta það tefja sig í að finna allt gasið innan í brunahólfinu.

Nú ertu ekki vitlaus lengur! ;)
Icelandic Volcano Yeti
Svara