Svona getur það farið í Ameríkunni

Kanntu skemmtilegar sögur? Eða veistu um sniðug vídeó?
Svara
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Svona getur það farið í Ameríkunni

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Vefgrein um lögsókn konu frá Illinois sem varð fyrir flugmódeli
Athyglisvert að það er AMA, Bandarísku flugmódelsamtökin sem eru ákærð en ekki hinn ólánsami flugmódelstjóri.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11654
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Svona getur það farið í Ameríkunni

Póstur eftir Sverrir »

Þetta óhapp varð í svifkeppni sem haldin var á svæði AMA í Muncie og það kemur fram í textanum að málsókninni er beint gegn AMA sökum vanrækslu þar sem þeir leyfðu óvönum flugmanni að stjórna módeli nærri áhorfendum en flugmaðurinn er líka nefndur sem sakborningur.

Sjálfsagt myndum við sjá eitthvað svipað ef við lendum í álíka aðstæðum, annars finnst mér nú vera smá Ameríkulykt af málinu.

Setningin um eiginmann þeirra slösuðu ansi góð.
[quote]Meek's husband, Robin, claims damages related to "the loss of his wife's services and consortium."[/quote]
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3836
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Svona getur það farið í Ameríkunni

Póstur eftir Gaui »

Smá leiðrétting, flugmaðurinn er líka lögsóttur. Greinilegt að þau telja meiri pening í að lögsækja heildarsamtökin líka, ekki bara fátækan módelmann sem gæti aldrei staðið undir skaðabótakröfu af neinu tagi.

Maður konunnar fer líka fram á skaðabætur fyrir þjónustumissi frá konunni sinni :D hvaða "þjónusta" er það sem hann fær með vinstri handlegg? ;)

Þessi lögsóknargleði BNAmanna er alvarlegur ljóður á annars ágætu landi.

Lesið um fleiri fíflalegar lögsóknir

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara