Skaust niður í Byko rétt eftir átta í morgun, var eini viðskiptavinurinn en ca. 10 starfsmenn og engin yrti á mig :/ Engin rafmagnsofn til þar alla veganna ekki fram á gólfi svo ég leit við í Húsasmiðjunni, sama sagan þar, nema ég fann ofn og kassadaman neyddist til að ræða við mig til að geta selt mér ofninn... kannski er þetta bara ég
Alla veganna, vélin komin út í bílskúr, Maggi fær þakkir fyrir vinnuhestana, fallega borðið smíðaði ég sjálfur úr afgöngum sem ég fann fyrir utan verkstæðið hjá Guðna, hann fær þá kannski aftur seinna. Skrokkurinn pússaður og tilbúinn smá hasar.
Búið að skera dúkinn til á skrokkinn, ég nota beittan hníf og stál/járn/ál- reglustiku.
Smá action mynd, takið líka eftir hönskunum, nauðsynlegir þegar verið er að vinna með sterk efni, ég blandaði tvisvar í rúmlega hálfan bolla í hvert skipti og átti smá afgang.
Og hér eru herlegheitin eftir álagningu en þarna á þó eftir að fara yfir nokkrar staði sem eru „blautir“.
[quote=Sverrir]Skaust niður í Byko rétt eftir átta í morgun, var eini viðskiptavinurinn en ca. 10 starfsmenn og engin yrti á mig hmm Engin rafmagnsofn til þar alla veganna ekki fram á gólfi svo ég leit við í Húsasmiðjunni, sama sagan þar, nema ég fann ofn og kassadaman neyddist til að ræða við mig til að geta selt mér ofninn... kannski er þetta bara ég wink[/quote]
Með Húsó og Byko er ekki af ástæðulausu að sumir starfsmenn þar séu kallað silfurskottur.
sama sagann á Akureyri hlaupa í allar áttir þegar þeir sjá mann ( Tek það fram sumir starfsmenn)
Síðast þegar ég fór inn í Byko á Akureyri þá hljóp einn á móti mér en svo þurfti ég reyndar að bíða í 10 mínútur eftir afgreiðslu, hlauparinn var nefnilega upptekinn með einhverri konu og vildi bara heilsa mér