Trissurnar eru komnar í vængina og glerið komið á. Hér er neðri vængur og ramminn í kringum glerið er skrúfaður niður með litlum skrúfum.
20231023_104043.jpg (144.77 KiB) Skoðað 2705 sinnum
Þegar neðri vængirnir voru tilbúðir, voru skrúfurnar búnar. Þá setti ég teppalímband undir rammana fyrir efri vængina og setti svo límdropa þar sem skrúfurnar eiga að vera.
20231023_104058.jpg (144.88 KiB) Skoðað 2705 sinnum
Hér er stýriskapallinn ofan á efri vængnum. Ég gerði gat í klæðninguna með lóðbolta og vírinn bara liggur þarna laus.
20231023_110547.jpg (135.3 KiB) Skoðað 2705 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.