Síða 2 af 5
Re: Airacobra P-39
Póstað: 29. Ágú. 2011 08:32:54
eftir Gaui
Já, ekkert eins spennandi og góður draugagangur

Það fórst ein við Melgerðismela. Flugmaðurinn þar hét Kassos (
http://www.daileyint.com/flying/flywar5.htm). Hann flaug inn í hólana sv við Melana og flugvöllurinn var síðan nefndur eftir honum, Kassos Field.
Spurðu bara um undirbúning og sprautun, við getum svarað, hvort sem við vitum svarið eða ekki

Re: Airacobra P-39
Póstað: 29. Ágú. 2011 08:52:41
eftir einarak
Þetta er glæsileg vél hjá þér, það verður gaman að fylgjast með þessu. Verður ekki mótorinn fyrir aftan flugmanninn einsog á orginalnum?

Re: Airacobra P-39
Póstað: 29. Ágú. 2011 09:26:07
eftir Gaui
Gefur nýja merkingu orðatiltækinu að vera með drifskaft á milli fótanna

Re: Airacobra P-39
Póstað: 29. Ágú. 2011 21:40:21
eftir Flugvelapabbi
Nu er tækifærið piltar, eg er með
Thunderbolt sem buið er að smiða en a eftir að mala eða setja a filmu og einnig
Stuku Ju 87D smiðuð af meistara Skildi Sig, velin er með OS 90 four stroke en servo laus.
Velarnar eru hja mer hafið samband og takið þatt i WAR bird deildinni.
Kv
Einar Pall 8977676
Re: Airacobra P-39
Póstað: 20. Nóv. 2011 17:44:21
eftir Ólafur
Hægt gengur það en gengur þó. Maður er orðið aldrei heima núorðið til að sinna þessu.
Ein mynd með.

Re: Airacobra P-39
Póstað: 22. Nóv. 2011 16:06:59
eftir Árni H
Góðir hlutir gerast hægt!

Re: Airacobra P-39
Póstað: 5. Des. 2011 16:17:06
eftir Ólafur
Jæja nú er ég búin að pússa og forma skrokkin svona nokkurnvegin og nú fer að styttast i að fara undirbúa balsan undir sprautun en eins og fram hefur komið þá langar mér til að prófa sprauta þessa vél. Það hef ég aldrei gert áður og mig vantar ráð og aðferðafræðina. Hvaða efni koma við sögu eins og grunn,sparsl og málingartegund,hún þarf væntanlega að vera fuelproof svo hún fari nú ekki bara af við fyrsta flug

. Er hægt að nota airbrush tæki við svona aðgerð osf osf.
Kv
Lalli
Re: Airacobra P-39
Póstað: 5. Des. 2011 19:58:52
eftir Gaui
Fyrir það fyrsta, þú mátt ekki reyna að mála beint á balsann -- hann drekkur í sig alveg ótrúlegt magn af málningu og verður mikly þyngri en hann þarf að vera. Best er að setja glerfíber á balsann, nema um sé að ræða opna grind, en þar myndi ég setja Solartex. Svo er hægt að mála og setja dkraut og aukahluti eins og þarf.
Skoðaðu hér:
http://www.airfieldmodels.com/informati ... /index.htm

Re: Airacobra P-39
Póstað: 5. Des. 2011 21:24:46
eftir Ólafur
Takk Gaui fyrir þetta innlegg. Hún er öll klædd með balsa svo hún verður þá öll klædd með glerfiber.Fæ ég hann hér á landi eða þarf ég að panta hann að utan,er einhver tegund sem þið mælið með ?. Hvað svo með málingarvinnuna ? Kaupi ég fuelproof airbrush málingu eða alment bara oliu eða akryl málingu ?
Kv
Lalli
Re: Airacobra P-39
Póstað: 5. Des. 2011 22:27:39
eftir Gaui
Fyrirtæki sem ég hef verslað við kallaði sig Fibretech, en hafa nú skipt um nafn og eru Bucks Composites.
http://www.bucks-composites.com/
Þeir selja glerfíber sem vert er að nota. Ég kaupi 50 gr/m2 glerfíberinn hjá þeim. Svo nota ég Zpoxy Finishing Resin (hugsanlega til í Tómo) Fibretch/Bucks er líka með epoxý kvoðu.
Þegar glerfíberinn er kominn á, þá nota ég bílagrunn úr úðabrúsum og síðan bara innanhússmálningu (plastmálningu) Svo er hægt að fá vatnsþynnanlega epoxý málningu til að setja glært á. Ég hef ekki enn notað hana, en Gummi er búinn að prófa hana.
