Jæja, maður hefur ekki setið aðgerðarlaus síðustu daga, glassaði lóðrétta stélflötin og svo er smá spartl- og pússivinna búin að vera í gangi á sjálfum skrokknum en þó ekkert sem útheimtir myndaannál. Kom við hjá Erling í Poulsen í dag og náði mér í smá sandpappír og fylligrunn, alltaf fínt að versla hjá honum. Ég ákvað að líta aðeins á stjórnklefamál þar sem það er jú alltaf gaman að sjá smá líf þar.
Ég verslaði á sínum tíma TF stjórnklefakit fyrir stóra Thunderboltinn þeirra svo ég byrja alla veganna með það til hliðsjónar.
Það passar bara nokkuð þokkalega en ég er enn að velta því fyrir mér hvað ég geri í þesari deild, sjáum til.
Hér er opið orðið eins stórt og það verður, ég þurfti að fjarlægja hluta af F5 skrokkrifinu.
Pússaði upp stélflötinn og ákvað að skella smá fylligrunn á hann.
Það má líka þynna út epoxy og fara aðra umferð yfir til að fá sléttari flöt en ég ákvað að nota fylligrunn, hann verður svo að mestu pússaður af.
Hér sést létt húð af fylligrunn komin á stélið.
Og hér er fylligrunnurinn að þorna við hitaveitugrindina, hann þarf ca. klukkutíma við 25-30°C til að vera góður í pússun.