Það var nokkuð ljóst að ég gæti ekki gert almennilega vélarhlíf fyrir FRÚna og því pantaði ég eina slíka frá Vic Catalasan hjá vicrc.com. Hún kom fljótt og örugglega og passar nokkuð flott framan á FRÚna.
20241023_103606.jpg (141.3 KiB) Skoðað 1506 sinnum
Hæðin á hlífinni er nokku rétt, en ég þurfti að skera af hiðunum og neðan til að hún passaði eins og hún á að gera samkvæmt teikningu.
20241023_112230.jpg (144.71 KiB) Skoðað 1506 sinnum
Ég skar og pússaði með Proxxon handfræsara.
20241023_113754.jpg (137.18 KiB) Skoðað 1506 sinnum
Og hér sést að hlifin er farin að passa nokkuð vel. Ég á bara eftir að pússa einhverja millimetra áður en ég set kubbana sem vantar framan á eldvegginn.
20241023_115924.jpg (146.33 KiB) Skoðað 1506 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég staðsetti vélarhlífina á skrokkinn með því að nota hringinn af nefkeilunni (spinnernum) og festi hana svo með þrem skrúfum. Það er ekki víst að ég þurfi fleiri, en það gæti hugsast að ég setji tvær í viðbót. Ég þurfti, nefnilega, að kljúfa hlífina að neðan svo hún gæti setið rétt.
20241024_114000.jpg (140.7 KiB) Skoðað 1462 sinnum
Hér sést neðan undir hlífina. Raufin sem ég þurfti að gera er um 5 mm breið aftast og ég er búinn að líma glerfíber plötu undir. Ég bjó líka til loftinntaki fyrir blöndunginn úr balsa og 0,3 mm glerfíberplötum og límdi það á sinn stað undir hlífina.
20241024_121308.jpg (143.46 KiB) Skoðað 1462 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Lendingarljósin eru í vélarhlífinni á TF-FRU, svo ég þurfti að taka gat í hana (vélarhlífina) og búa til botn sem hallar í rétta átt fyrir ljósin. Epoxý lím með örkúlum (microballoons) notað til að festa þetta í og fylla upp í.
20241025_103027.jpg (135.64 KiB) Skoðað 1436 sinnum
Svo fór ég með hlífina út og sprautaði fyrstu umferð af grunni. Nú þarf ég að fylla í öll göt sem ég finn og svo pússa grunninn allan af áður en ég grunna aftur.
20241025_112423.jpg (142.47 KiB) Skoðað 1436 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Allur morguninn fór í að pússa grunninn niður með P320 sandpappír. Svo grunnaði ég aftur. Vélarhlífin er nánast tilbúin undir málningu. Bara eftir að fylla í nokkrar misfellur og pússa smá í viðbót. Næst veður það P400 pappír. Svo bý ég til plötuskil, samskeyti, lúgur og lamir.
20241026_113959.jpg (138.01 KiB) Skoðað 1394 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég notaði þríhliða teikningu (3-view) til að draga skil upp á vélarhlífina. Þar eru sýndar heilmiklar lúgur og áberandi lamir ofan á hlífinni. Ég bjó lúgurnar til úr ál-límbandi og setti lamirnar með fylliefni á milli límbanda. Þegar heim kom skoðaði ég myndir af FRÚnni og sá þá að horki lamirnar né þessar lúgur eru réttar. Ég laga það á morgun.
20241028_094317.jpg (127.69 KiB) Skoðað 1299 sinnum
Plötuskil eru búin til með því að leggja minnst þrjú lög af límböndum og smyrja svo fylliefni að þeim, þeim megin sem hryggurinn á að vera.
20241028_095421.jpg (134.46 KiB) Skoðað 1299 sinnum
Hér er ég búinn að smyrja að öllum skilum sem ég held að eigi að vera. Þetta þarf að fá að þorna til morguns svo ég geti pússað það niður að límbandinu.
20241028_113325.jpg (139.93 KiB) Skoðað 1299 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég hreinsaði burt það sem ekki átti að vera ofan á vélarhlífinni, pússaði of límdi litla lúgu eins og ég sá á ljósmyndum. Ég pússaði líka niður fylliefnið við límböndin og sleit svo límböndin af.
20241029_094759.jpg (138.17 KiB) Skoðað 1234 sinnum
Hér er ég búinn að grunna vélarhlífina. plötuskilin eru sæmilega áberandi.
20241029_095412.jpg (135.01 KiB) Skoðað 1234 sinnum
Ég bjó til hnoð með því að setja litla límdropa þar sem þau eiga að vera.
20241029_103556.jpg (132.84 KiB) Skoðað 1234 sinnum
Og svo sprautaði ég með hvítum.
20241029_115943.jpg (126.96 KiB) Skoðað 1234 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Þetta er alveg ofboðslega flottur þráður og vönduð lýsing á endursmíði af þessari sögufrægu vél, vonandi getur einhver sem þekkir Ó.R..persónulega, glatt hann með því að sýna honum þennan þráð.
Lúlli
Mér skilst að EPE hafi sagt ÓR frá því að það væri einhver klikkaður kall á Dalvík að smíða módel af TF-FRU, en honum þótti ekki mikið til koma og hafði engan áhuga á að sjá það.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Í dag maskaði ég fyrir dökka bláa litnum og sprautaði hann á vélarhlífina. Nú er bara eftir að setja smá notkun á hlífina og ljós.
20241106_095902.jpg (140.26 KiB) Skoðað 1030 sinnum
Ljósin verða ekki virk. Ég fékk mér farangurssnúru og leir og reyndi að búa til glerin fyrir lendingarljósin. Ég setti epoxý lím í holurnar og nú þarf ég bara að bíða eftir að þetta harðni. (þetta lítur smá út fyrir að vera nefið á svíni með kvef)
20241106_110718.jpg (139.38 KiB) Skoðað 1030 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.