Síða 3 af 3

Re: 24.12.2009 - Gleðileg Jól

Póstað: 27. Des. 2009 17:10:33
eftir Björn G Leifsson
[quote=Ljoni]ég gaf konuni hring í jólagjöf og nú er hún ekki bara kærasta mín heldur unnusta þannig að ég er kominn með leyfir fyrir að kaupa meira sona dót :D[/quote]
Til hamingju.
Þú getur skilað til hennar frá okkur að flugmódelfíklar eru afskaplega góðir eiginmenn, að minnsta kosti þegar þeir fá nægilega útrás fyrir hobbíið ;)
Þegar þeir koma heim eftir góðan dag á módelvellinum þá eru þeir til í hvað sem er fyrir frúna, hvort sem það er að ryksuga alla íbúðina eða eitthvað annað skemmtilegt.

Eitt verða þær þó að vita og virða. Þær mega aldrei spyrja að fyrra bragði hvernig gekk og þær mega alls ekki spyrja hvað gerðist ef þær taka eftir balsabrotum í skottinu á bílnum. Bara láta eins og ekkert sé og sjá til þess að það sé fljótlega til smá peningur fyrir nýrri vél.
:D :D :D :D :D

Re: 24.12.2009 - Gleðileg Jól

Póstað: 27. Des. 2009 19:31:52
eftir maggikri
Góður flugdoktor, greinilega vanur maður hér á ferð.
kv
MK

Re: 24.12.2009 - Gleðileg Jól

Póstað: 27. Des. 2009 22:50:54
eftir Ágúst Borgþórsson
[quote=Ljoni]ég gaf konuni hring í jólagjöf og nú er hún ekki bara kærasta mín heldur unnusta þannig að ég er kominn með leyfir fyrir að kaupa meira sona dót :D[/quote]
Til hamingju með unnustuna :)

Re: 24.12.2009 - Gleðileg Jól

Póstað: 27. Des. 2009 23:09:06
eftir Guðjón
[quote=maggikri]Góður flugdoktor, greinilega vanur maður hér á ferð.
kv
MK[/quote]
haha hérna lærir maður ekki bara um flugmódel :rolleyes: