Smá myndband, klippt í flýti og smá brotlending í endann. Flughæfileikar í lágmarki en þetta er allt að koma
(Myndbandið er processing en ætti að detta inn eftir nokkrar mín)
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 7. Jún. 2010 23:20:56
eftir Sverrir
Ekki slæmt!
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 8. Jún. 2010 18:55:27
eftir hrafnkell
Já gaman að þessu Mæli með að velja hærri gæði á videoinu - þá verða gæðin aðeins þolanlegri.
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 23. Sep. 2012 20:08:16
eftir hrafnkell
Jæja 2 árum seinna og ég er byrjaður að fikta í þessu aftur. Var alltaf planið að vinna í þessu seinasta sumar, en ekkert varð úr því... Og í sumar, en ekkert varð úr því heldur. Ekki seinna vænna en að fikta í þessu núna
Er með kk2.0 borð í þyrlinum núna, uþb 47cm á milli mótora:
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 27. Sep. 2012 17:18:46
eftir hrafnkell
Smellti mér í að gera nýjan ramma, "gamli" var óþarflega laus í sér...
Teiknaði miðplötuna í sketchup, prentaði út í 1:1 og límdi á álplötu til þess að aðstoða við staðsetningu á götum o.fl.
Flassaði líka ESC með nýju firmware, sem á að henta mun betur fyrir fjölþyrla
Lóðaði þetta á servoin til þess að geta flassað þau
Kroppaði svo límmiðana af og setti á kæliplöturnar, pakkaði svo inn í glæra herpihólka
Lítur nokkuð vel út finnst mér bara! Verður athyglisvert að sjá hvort/hvernig þetta virkar.
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 28. Sep. 2012 08:16:36
eftir Jónas J
Já þetta lítur bara mjög vel út hjá þér verður gaman að fylgjast með framhaldinu.
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 28. Sep. 2012 15:45:29
eftir hrafnkell
Fokk. Setti óvart útgáfu af firmware síðan í janúar. Opnaði allar hraðastýringarnar (aftur!), flashaði aftur og skipti um power snúrur í leiðinni - vantaði að hafa þær nokkrum cm lengri. Vonandi engar kaldar lóðningar þar sem eiga eftir að stríða mér
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 28. Sep. 2012 20:47:08
eftir einarak
Snjallt, hvernig breytast esc-arnir við nýja firmware-ið?
Re: 4 hreyfla þyrla - Quadcopter
Póstað: 28. Sep. 2012 22:06:48
eftir hrafnkell
[quote=einarak]Snjallt, hvernig breytast esc-arnir við nýja firmware-ið?[/quote]
Minni filtering á signali frá tölvunni sem stýrir quadinum. Þannig skila skipanir sér fljótar og stýringin getur brugðist betur við. Einnig hærra refresh rate skilst mér, en ég hugsa að filteringin sé aðal málið. Fólk talar um að geta hækkað gain umtalsvert með nýju firmware án þess að fá sveiflur (oscillations) í þyrilinn. Sem þýðir að hann bregst fljótar og betur við inputti frá stjórnanda.
Ég stefni á því að púsla þessu saman um helgina og jafnvel ná að prufufljúga...