Síða 3 af 18

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 23. Júl. 2010 14:39:20
eftir Haraldur
Það verður gaman að sjá myndir af tilbúinum módelum. Og svo setum við þær í dóm götunar og dæmum hvaða módel er best smíðað.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 23. Júl. 2010 17:00:28
eftir Gaui
Mig vantaði að setja hjólastell undir Fjósamanninn og þar sem ég átti leifar af Volvo stuðara undir borði datt mér í hug að tékka hvort ég gæti efnað úr honum í eitt sett. En fyrst þurfti ég að finna út hvað það ætti að vera stórt. Það eru engar leiðbeiningar um það og Steve bendir bara á að maður geti notað afgangs stell eða keypt nýtt.

Eina leiðin til að ákvarða stærðina var að nota teikninguna sem fylgir. Ég mældi hæðina á stellinu þar og reyndi að finna samsvarani vegalengd sem ég gæti mælt á módelinu. Hér sést hvar ég mældi:

Mynd

Nú teiknaði ég upp stell sem passar á skrokk sem er 23 sm á breidd og á að vera u.þ.b. 19 sm í mitt dekkið. Það varð strax ljóst að ég gat ekki fengið heilt stell úr stuðaranum, svo ég ákvað að snikka það í tvennu lagi. Hér er ég búinn að teikna annan helminginn á stuðarann:

Mynd

Nú var bara að fá sér skurðarskífu í slípirokkinn og skera út tvo stellhelminga:

Mynd

Hér er ég búinn að sverfa til með þjöl, þrífa ryðvörnina af (já, þykkt lag að Techtyl !) beygja og setja dekk á:

Mynd

Og hér er svo stellið komið undir. Bara ágæt, þó ég segi sjálfur frá.

Mynd

Ég notaði tækifærið og setti togkrók eins og Dr.B gerði. Þeir virka fínt þessir: ég er búinn að prófa svona áður.

Mynd
:cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 23. Júl. 2010 20:12:43
eftir Árni H
[quote=Gaui]Vídeologgurinn er hreinasta snilld Doktor Björn. Ef ég ætti vídeokameru, þá myndi ég herma þetta eftir þér.[/quote]
Gaui - ég get glatt þig með því að þú átt nú hér með ágæta HD vídeókameru. Hún er bara svolítið utan seilingar enn ;)

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 23. Júl. 2010 20:38:00
eftir Gaui
Ég bíð með heilan andahóp í hálsinum. :cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 27. Júl. 2010 10:41:49
eftir Agust
Það styttist í fyrsta flug í þessum smíðaþræði:

http://www.rcmf.co.uk/4um/index.php/topic,67654.0.html

Steve Holland fylgist með og gefur gór ráð.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 30. Júl. 2010 14:45:52
eftir Gaui
Þá er ég búinn að sækja mótorinnn sem ég ætla í Fjósamanninn (gárungarnir hér fyrir norðan eru farnir að kalla þetta Sveitavarginn, en við tökum nú ekki mikið mark á þeim!). Það er Moki 45 sem ég var með í Sopwithg Pup. Þar sem nokkuð er liðið á 2007, þá ákvað ég að nota notað í staðinn fyrir að kaupa nýtt.

Mynd

Þá var hægt að smíða vélarhlíf, en hún er algerlega úr timbri og smokkast yfir mótorinn:

Mynd

Og hér er svo vélarhlífin komin á.

Mynd

Ég er búinn að reikna út hvað ég þarf af efni í vænginn og þarf líklega að punga út með um tíu kjarvala fyrir því. Sjáum til eftir helgi.

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 30. Júl. 2010 15:00:15
eftir Siggi Dags
Flottar bremsur ;)

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 30. Júl. 2010 17:02:37
eftir Gaui
Einfalt virkar oftast best :cool:

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 31. Júl. 2010 10:01:57
eftir Agust
Hafa menn eitthvað spáð í hvort þeir ætli að hafa vænginn í tveim hlutum eða ekki? Hann er 220 cm langur og því ekki auðvelt að flytja hann í einu lagi.

Fyrir 20 árum smíðaði ég Ultra-Hots eftir eikningu. Gert var ráð fyrir að 200 cm vængurinn væri í einni lengju, en ég smíðaði hann þannig að uðvelt yrði að flytja hann í tveim 100 cm hlutum.

Myndir af vélinni má sjá hér.

Vængur Fjósamannsins er með dihedral, en Ultra-Hots er beinn.

http://www.agust.net/rc/Ultra-Hots/

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstað: 31. Júl. 2010 10:29:24
eftir Björn G Leifsson
Ég ætla að hafa vænginn í tveimur hlutum og er að hugsa um að fylgja ráðum herra Holland. Hann talar um að útbúa samsetningarbitana úr kolfíberplötum sem ná tvö rifjabil inn í vænginnn Það ætti að vera frekar einfalt en kostar að kaupa kolfíberplötur og samlíma í 6mm þykkt efni til að saga út bitana úr.
Var að velta fyrir mér hvort hægt væri að hafa hann í þremur hlutum, einn beinan undir vélinni með flöpsunum á og svo hallandi hluta þar fyrir utan en slík breyting mundi krefjast meiri hönnunarvinnu.

Eins og venjulega þá þýtur Gaui fram úr manni ;) Sjálfur er ég stopp í bili, kemst ekki í gang aftur fyrr en í septemberbyrjun,,, vonandi. Verð í útlandinu allan ágúst svo þið verðið bara að skemmta ykkur án mín á Costa del Mel :(