Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
[quote=Gauinn]Þetta er ekkert einfalt mál :rolleyes:[/quote]
Sjálfstýringar með 3ja ása gíró eru flókinn tækjabúnaður. Þó einfalt í notkun ef maður les leiðbeiningarnar og skilur þær.
Góð handbók er á netinu hjá Eagletree, þar koma fram stillimöguleikar og notkun PC forritsins sem notað er til að stilla tækið. PC forritið hef ég þó aldrei þurft að nota. Tækið kemur að mestu forstillt fyrir venjuleg módel. http://www.rctoys.com/pdf/Guardian_2D-3D.pdf
Góður spjallvefur er á netinu um tækið. Þar er mikill fróðleikur og margar reynslusögur. http://www.rcgroups.com/forums/showthread.php?t=1596644

Þetta er jú flókin græja innaní, en miklu til kostað til að hafa hana sem einfaldasta fyrir notandann. Ég get ímyndað mér að það sé pínu skrítið að fljúga með henni fyrst, sérstaklega ef maður er vanur módelflugi, en venst fljótt ef maður veit hvernig vélin hagar sér með kveikt á guardian.
Þetta myndband er frá framleiðandanum og sýnir uppsetningu á græjunni.

- Gunni Binni
- Póstar: 597
- Skráður: 7. Apr. 2008 23:26:17
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Jæja þá eru vinir mínir komnir með þennan á að mér sýnir nokkuð góðu verði eða um 50$.
http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... lizer.html
Ég held þeir fylgist með spjallþræðinum hér og hafa séð á orðum Ágústs að þetta væri það eina sem vit er í
kveðja
Gunni Binni
http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... lizer.html
Ég held þeir fylgist með spjallþræðinum hér og hafa séð á orðum Ágústs að þetta væri það eina sem vit er í

kveðja
Gunni Binni
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
[quote=Gunni Binni]Jæja þá eru vinir mínir komnir með þennan á að mér sýnir nokkuð góðu verði eða um 50$.
http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... lizer.html
Ég held þeir fylgist með spjallþræðinum hér og hafa séð á orðum Ágústs að þetta væri það eina sem vit er í
kveðja
Gunni Binni[/quote]
Í dag kláraðist lagerinn hjá http://rc-log.co.uk/
Það streymdu víst pantanir til þeirra undanfarna daga frá landi elds og ísa.
http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... lizer.html
Ég held þeir fylgist með spjallþræðinum hér og hafa séð á orðum Ágústs að þetta væri það eina sem vit er í

kveðja
Gunni Binni[/quote]
Í dag kláraðist lagerinn hjá http://rc-log.co.uk/
Það streymdu víst pantanir til þeirra undanfarna daga frá landi elds og ísa.
- Gunni Binni
- Póstar: 597
- Skráður: 7. Apr. 2008 23:26:17
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Ég beið með að panta þar til ég var búinn í vinnunni vegna anna. Þegar ég kom heim var lagerinn búinn hjá HK 
Hefði ekki átt að segja frá þessu hér!!!! Viss um að þið hafið klárað lagerinn
Ég sé að þú sást að ég reyndi að setja link á pistilinn þinn Ágúst
kveðja
Gunni Binni

Hefði ekki átt að segja frá þessu hér!!!! Viss um að þið hafið klárað lagerinn

Ég sé að þú sást að ég reyndi að setja link á pistilinn þinn Ágúst

kveðja
Gunni Binni
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Auðvitað kom þetta á HK 2 dögum eftir að ég pantaði annarsstaðar frá.. Töluvert ódýrara auðvitað líka. En enginn skaði skeður, þetta er líklega prýðis græja og verður gaman að prófa.
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Pantaði eitt stykki frá Bretlandi, sá svo verðið hjá hobby king, 3stk til á lager en bara þann stutta tíma sem það tok að panta lenti ég á backorder 

- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Ef ég skil þetta rétt þá er þessi græja jafngild hjálpardekkjunum á reiðhjóli?
Er líka sekur um að minnka lagerinn. Verður notað til að hjálpa Bleiku Fiðrildi á loft.

"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
[quote=Björn G Leifsson]Ef ég skil þetta rétt þá er þessi græja jafngild hjálpardekkjunum á reiðhjóli?
Er líka sekur um að minnka lagerinn. Verður notað til að hjálpa Bleiku Fiðrildi á loft.[/quote]
Þetta er örugglega snilldar tæki en það er líka gaman að fljúga í roki og með svona tæki
gæti flugið orðið bara leiðinlegt

Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Re: Guardian 2D 3D stabilizer og vindflug
Guardian 2D/3D er búinn að gera mér kleyft að fljúga mikið í sveitinni þrátt fyrir rysjótt veður. Áður fyrr forðaðist ég að fljúga í vindi, þótti það einfaldlega ekki skemmtilegt.
Nú er ég eiginlega orðinn vindfíkill. Oft bíð ég með að fljúga þar til vindurinn er orðinn það mikill að Bixler eða Multiplex FunJet geti staðið kyrr í loftinu eða lent lóðrétt í nokkurs konar Harrier.
Fyrir um mánuði eða rúmlega það flaug ég FunJet nærri miðnætti. Birtu var tekið að bregða en á vélinni er slatti af ljósdíóðum sem hjálpuðu mikið. Skyndilega misstí ég þó hálfpartinn sjónar á vélinni og áttaði mig ekki á því hvernig hún snéri, enda var hún komin heldur langt frá flugmanninum. Vélin var komin á hvolf sýndist mér og stefndi í óefni. Ég skellti Bixler í 2D stöðu, vélin fór á réttan kjöl, og ég lóðsaði henni til baka.
Makalaust góð græja þessi Guardian. Í gær setti ég einn í F27Q Stryker. Væntanlega reynist það svipað og í FunJet.
Nú þegar vindurinn er orðinn minn besti vinur, þá er ég farinn að svipast um eftir búnaði sem gerir flug í rigningu ánægjulegt. Þekkið þið slíka græju?