Smíðað á Grísará
Re: Smíðað á Grísará
Ég náði akkúrat mynd af Árnanum þegar Gauinn spurði hvernig gengi að klæða Mig (sig)?

Jón Stefánsson
Re: Smíðað á Grísará

Re: Smíðað á Grísará
Það eru tímamót að Grísará. Árið 1984 eða 5 byrjaði ég að setja sama Cessna Bird Dog módel á Ísafirði. Við það tækifæri var þessi mynd tekin:
Módelið er í 1/5 skala og var fram leitt af Japanska fyrirtækinu Marutaka.
Síðan eru liðin nokkur ár og Mummi tók á endanum við smíðinni. Hann var svo lengi að dúlla við hana að hún fékk nafnið Borðdúkurinn, en nú er hann búinn.
Í gær lagði hann lokahönd á módelið og útskrifaði það úr skúrnum.
Balgvanísering fór fram, stýri voru stillt og mótorinn prófaður.
Það verður frumflug bráðlega.

Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Smíðað á Grísará
Skýið lagað
Sá ógurlegi atburður gerðist síðastliðinn laugardag (22. ágúst 2020) að mótorinn í SKY 120 datt allt í einu niður í hægagang í miðju flugi og þegar ég reyndi að lenda honum missti hann allt flug í um fimm metra hæð og þetta voru afleiðingarnar.
Mótorinn brotnaði framan af og helmingur af nýju Volvo hjólstelli rifnaði af. Þá var bara spurningin: af hverju hafði mótor servóið hætt að virka. Við skoðun virtist ástæðan vera ljós: Skrúfufestingin á servó arminum hafði losnað og teinninn sem tengdur var í inngjöfina lék laus. Við það tók gormurinn á blöndungnum yfir og dró niður í mótornum. Ég hafði notað skrúfulím eins og lög gera ráð fyrir, en á þeim árum sem ég er búinn að fljúga þessu módeli, þá hafði festiskrúfan náð að víbra laus!
Hvað er hægt að læra af þessu? Jú, svona skrúfufestingar á ekki að nota með teinum. Bara nota þetta með ofnum vír sem skrúfan getur kramið þegar hert er á henni.
SKY 120 var færður heim í skúr og byrjað að gera við. Það fyrsta sem ég gerði var að skara allt laust lím í burtu og síðan setti ég þykkan krossvið það sem trekantlistarnir höfðu verið áður. Síðan var hægt að líma eldvegginn aftur í með góðu epoxý lími. Til að halda honum að krossviðarstoðunum notaði ég sjáfsnittandi skrúfur sem ég skrúfaði í gegnum göt á eldveggnum. Hérna er svo verið að líma balsakubb ofan á eldvegginn. Í staðinn fyrir skrúfufestinguna svikulu gerði ég 90° beygju á teininn og setti hann á servó arminn með það sem á ensku kallast sving keeper, mjög einfalt dæmi sem ég á von á að detti ekki af af sjálfu sér. Hér er búið að pússa niður balsann ofan á eldveggnum og hreinsa eldvegginn sjálfan. Hann var síðan málaður með svartri málningu. Vírarnir tveir eru fyrir ádreparann. Þá er komið að klæðningu. Sem betur fer átti ég afganga, bæði af bláu og hvítu filmunni og gat klætt nefið þannig að enginn sér að viðgerð hefur farið fram. Hér er klæðningin komin á og mótorhúsið skrúfað á sinn stað. SKY 120 stendur í fæturna aftur. Ég skrúfaði hjólastellið undir á meðan límingin harðnaði á franska rennilásnum sem á að halda tanknum. Það var 500ml tankur í SKY 120, en þar sem Tommi átti bara 175ml tank, þá setti ég hann í. Mótorinn komin í aftur. Þetta er að hafast. Og hér er viðgerðin búin og SKY 120 tilbúinn í loftið á ný. Hann flýgur aftur á morgun ef veður leyfir.