Síða 1 af 1
Re: MotoCalc
Póstað: 21. Júl. 2005 18:56:31
eftir Agust
Til er feyki öflugt forrit til að spá fyrir um flughæfni rafmagnsmódela, bera saman mótora, velja heppilegan spaða, o.m.fl.
Forritið er hægt að fá hér:
http://www.motocalc.com
Þessi útgáfa dugir í 30 daga, en eftir það þarf að greiða $35.
Hefur einhver reynslu af þessu forriti?
Ágúst
Re: MotoCalc
Póstað: 21. Júl. 2005 19:03:19
eftir Sverrir
Þegar ég hef verið að spjalla við rafhausa úti þá mæla þeir allir sem einn með þessu forriti til að hafa til hliðsjónar
þegar verið er að gera tilraunir með mótora og spaða. Hins vegar segja þeir líka að ekki megi taka þetta of bókstaflega
heldur beri ávallt að taka niðurstöðunum með smá fyrirvara og gera sínar eigin mælingar.
Re: MotoCalc
Póstað: 21. Júl. 2005 19:41:06
eftir Agust
Hér er annað forrit, miklu einfaldara og keyrt í vefskoðaranum:
http://brantuas.com/ezcalc/dma1.asp
Re: MotoCalc
Póstað: 21. Júl. 2005 22:28:50
eftir Sverrir
Svona á þetta að vera

Re: MotoCalc
Póstað: 22. Júl. 2005 08:11:32
eftir Agust
[quote=Agust]Hér er annað forrit, miklu einfaldara og keyrt í vefskoðaranum:
http://brantuas.com/ezcalc/dma1.asp[/quote]
Þar sem forritið, sem keyrt er í vefskoðaranum, er einfalt í notkun er það einnig mjög takmarkað.
MotoCalc virðist vera toppurinn, og ætla ég að skoða það betur. Ég held það sé vel $35 virði.
Re: MotoCalc
Póstað: 7. Ágú. 2005 11:58:37
eftir Agust
Ég afritaði handbók MotoCalc í Acrobat og setti hér:
http://www.agust.net/pdf/MotoCalc-manual.pdf
Re: MotoCalc
Póstað: 7. Ágú. 2005 12:13:28
eftir Sverrir
Takk

Re: MotoCalc
Póstað: 23. Mar. 2006 00:53:44
eftir Sverrir