Síða 1 af 1

Bleikisteinsháls - 21.apríl 2024

Póstað: 21. Apr. 2024 12:31:27
eftir Sverrir
Þrátt fyrir að vera nánast í hávestan í morgun þá var einhvern smá sunnanþefur af vindinum við Hamranesið svo ég ákvað að skella mér á svæðið með svifflugu og kanna hvort það væri eitthvað hang í kortunum. Stuttu eftir að ég mætti á svæðið þá kom Guðjón í sömu erindagjörðum og þrátt fyrir að vindurinn væri frekar vestanstæður þá var smá sunnanátt í honum og eins og oft vill vera þá var hann betri upp á brekkubrún.

Þegar upp var komið kom í ljós að vindurinn var í kringum 10 m/s og blés ca. 60° á brekkubrúnina þannig að það var ekki annað í stöðunni en að ballesta vel og henda vélinni upp í vindinn. Þokkalegasta hang en frekar rysjótt og ekki skemmtilegustu aðstæðurnar en sæmilega hlýtt og sól. Ágætis viðring svona í byrjun tímabils og fyrsta hangflug ársins hér heima hjá mér.



IMG_9386.jpg
IMG_9386.jpg (266.09 KiB) Skoðað 418 sinnum

IMG_9391.jpg
IMG_9391.jpg (22.92 KiB) Skoðað 418 sinnum

IMG_9392.jpg
IMG_9392.jpg (226.93 KiB) Skoðað 418 sinnum

IMG_9394.jpg
IMG_9394.jpg (445.35 KiB) Skoðað 418 sinnum

IMG_9395.jpg
IMG_9395.jpg (321.32 KiB) Skoðað 418 sinnum

Re: Bleikisteinsháls - 21.apríl 2024

Póstað: 21. Apr. 2024 12:45:53
eftir gudjonh
Já, skemmtilegur morgunn þrátt fyrir að það stæði "skakt" á brekkuna!