Skáldalækur - 25. maí 2024
Póstað: 25. Maí. 2024 12:48:04
Við ætluðum að fljúga á Árskógi, en vindáttin reyndist ekki vera hagstæð, svo við fórum á Skáldalæk. Við rétt komumst niður á brautina fyrir snjóskafli sem enn er að reyna að bráðna, en þegar þangað var komið var hægt að fljúga. Eins og sést á myndunum er grasið vel kalið á brautinni.
Gaui flaug Mighty Barnstormer. Mótorinn (OS 96) virtist betri í skapinu en síðastliðið sumar og gekk eins og klukka. Elvar var með Stinger og hann er farinn að ná góðum tökum á honum.
Gaui flaug Mighty Barnstormer. Mótorinn (OS 96) virtist betri í skapinu en síðastliðið sumar og gekk eins og klukka. Elvar var með Stinger og hann er farinn að ná góðum tökum á honum.
