Síða 1 af 1

Re: Habu

Póstað: 12. Júl. 2010 01:11:15
eftir Björn G Leifsson
Hjörtur að fljúga nýju frauðflugunni sem hann keypti af Ali Machinchy fyrr í dag.



Eftir um það bil viku verð ég kominn með almennilega kvikmyndavél. Þangað til verða menn bara að hafa þolinmæði með svona tilburðum á vasamyndavélina sem ekki er ætluð til kvikmyndatöku.

Brautin sem hann er að fljúga af er vegarstúfur rétt hjá Keldnaholti sem lokað hefur verið fyrir umferð.

Þarna virðist óhætt að fljúga minni rafmagnsflygildum. Eina hættan sem ég sé er Víkurvegurinn sem liggur allnokkurn spotta frá brautarendanum en handan hans er kirkjugarðurinn. Lítið um hindranir í kring og þykkar Lúðinubreiður sem taka viðkvæmum módelum frekar vel.

Mynd

Hér er kort sem sýnir staðinn:

Mynd

Re: Habu

Póstað: 12. Júl. 2010 23:18:02
eftir Björn G Leifsson
Smá viðbót úr Grafarvoginum, tekið á Æfón í kvöldkyrrðinni áðan.