Síða 1 af 1

Re: Þrjóskir kallar

Póstað: 2. Mar. 2011 13:35:07
eftir Gaui
Þegar Magnus gaf Klavins vini sínum rafmagnsflugmódel þá ....



Jebbs - það er erfitt að kenna gömlum hundum að nota rafmagn !

Áfram Klavins! Ekkert andskotans rafmagnsdrasl !!!

:cool:

Re: Þrjóskir kallar

Póstað: 2. Mar. 2011 13:46:33
eftir Sverrir
Bíddu þú reiðst um sveitir landsins með bændum hérna í den að berjast gegn ritsímanum ekki satt? :P

Re: Þrjóskir kallar

Póstað: 2. Mar. 2011 16:04:34
eftir Gaui
Orðið Luddíti er ekki langt frá huga.

Flettið því upp ef þið þekkið það ekki. Wikipedia er góður vefur til þess.

:cool:

Re: Þrjóskir kallar

Póstað: 2. Mar. 2011 19:15:28
eftir Björn G Leifsson
heheh...

...en það er smá feill í þýðingunni, hann gaf ekki Klavins vélina heldur seldi hana. Seldi hana ódýrt í von um að fá besta vin sinn til að sjá raf-ljósið og láta af þessu eilífa metanól-sulli sínu.
En aumingja Magnus varð fyrir miklu áfalli. Svo slæmu að hann neyddist til að fara út í fyrstu vorsólina, þó í snjónum væri, og hovra svolítið til að sjá hvort hann gæti endurheimt eitthvað smávegis af gleði sinni.