Síða 1 af 1
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 31. Maí. 2006 06:40:54
eftir Agust
Í sveitinni hef ég lengi verið að vandræðast með hleðslutækin mín. Öll ganga þau á 12 voltum og þurfa allt að 5 ampera straum. Ég hef notast við 12V bílarafgeymi og hlaðið hann reglulega með gömlu hleðslutæki. Nú var geymirinn orðinn ónýtur, þannig að eitthvað þurfti að gera í málinu.
Ég pantaði mér 13,8 volta aflgjafa frá Galaxy
http://www.galaxymodels.co.uk/new/resul ... ccessories
Ég valdi þennan með ampermælinum, en sá litli svarti hefði verið nægilegaq stór.
Allir aflgjafarnir eru af "switch mode" gerð, og því mun léttari en eldri gerð sem er með þungum spennubreyti.
Það er mikill munur að geta stungið hraðhleðslutækjunum í samband án þess að vera að þvælast með bílarafgeymi.
Heima í bílskúrnum er ég með gamlan 230V/12V/15A aflgjafa. Hvað notið þið?

Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 31. Maí. 2006 08:39:26
eftir Björn G Leifsson
Gamlan(?) 240v->12v/5A, 5kg hlúnk sem ég keypti á sínum tíma til að hafa nota NMT farsíma í bústaðnum.
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 31. Maí. 2006 09:35:06
eftir Sverrir
230V/13.8V/10A sem var keyptur til að nota með hleðslutæki.
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 31. Maí. 2006 19:43:29
eftir Gaui
Var að kaupa þennan í gær í Íhlutum á Skipholti. Afar sanngjarnt verð, um þrír og hálfur Kjarvall

Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 31. Maí. 2006 19:53:59
eftir Agust
Þetta er alldeilis gott verð hjá Eyþóri. Óþarfi að leita út fyrir landsteinana, eða sækja vatnið yfir lækinn!
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 1. Jún. 2006 01:11:15
eftir Sverrir
Gaui þessi er nú bara alveg eins og minn

Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 1. Jún. 2006 11:12:56
eftir Gaui
Sverrir:
Great minds think alike

Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 1. Jún. 2006 12:09:58
eftir Björn G Leifsson
Hmmm... var að líta betur á framhliðina á mínum og þar stendur reyndar 13.8 volt en ekki 12 eins og ég hélt.
Bara svona í fáfræði...hvaðan kemur þessi tala? Af hverju 13.8 en ekki 12? ( eða 13,7 eða 14 eða... )
Ég er viss um að Ágúst kann að útskýra hana.
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 1. Jún. 2006 15:04:07
eftir Agust
Ef hleðsluspenna 12 volta blýrafgeymis er 13,8V (2,3 volt per sellu) þá nær rafgeymirinn að fullhlaðast án þess að gas (vetni og súrefni) myndist við skautin. Gas myndast ef spennan er hærri. Með þessari spennu er óhætt að hafa rafgeyminn tengdan hleðslutækinu um ótakmarkaðann tíma án þess að hann skemmist. Hann helst einfaldleag fullhlaðinn (float charge)
Þannig má hlaða rafgeyminn í field boxinu með því að tengja hann við 13.8V
Sjá
http://www.batteryuniversity.com/partone-13.htm
Re: 13,8V aflgjafar
Póstað: 12. Júl. 2006 20:20:35
eftir Sverrir
Fyrir þá sem hafa gaman af að gera hlutina sjálfir,
http://web2.murraystate.edu/andy.batts/ ... supply.htm
En endilega lesið vel síðuna ef þið ætlið að hella ykkur út í þetta, það er ekkert grín að vera með svona þétta ef e-ð misferst!