Síða 1 af 1
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 2. Feb. 2012 13:25:07
eftir eibsen
Sælir,
Er hægt að nálgast eitthvað af aukahlutum vegna módelsmíða hér á landi eð a þarf að panta ALLT inn?
Hvaða aðili er skástur í smáhlutum eins og Servó-framlengingum/aukahlutum, píanóvírum, tengjum, festingum, lendingarhjólum o.þ.h?
kv,
Egill
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 2. Feb. 2012 13:51:40
eftir Sverrir
Það eru til ótrúlegustu hlutir í Tómstundahúsinu af þessu smádóti, sumt á fínu verði, annað ekki.
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 2. Feb. 2012 18:42:03
eftir Spitfire
Ég fékk einu sinni að gramsa í skúffunum bakvið búðarborðið í Tómstundahúsinu, fann sumt af því sem mig vantaði, fann og keypti einnig heilan helling af smádóti sem var ekki á pöntunarlistanum :p
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 11:16:04
eftir eibsen
Takk fyrir þetta. Kíki þangað fljótlega.
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 11:34:38
eftir Björn G Leifsson
Bara smá innskot þar sem þú nefnir servóframlengingar. Það er ekki slæm fjárfesting að fá sér töng og
tengi hjá vinum okkar í HobbyKing. Með smá lagni er auðvelt að setja svona tengi á vír. Svo hef ég oft bara klippt servósnúruna og lóðað inn vír og einangrað með krumpuhólk. Ýmsar útgáfur af servóvír fæst í HK og snúinn, góður servóvír fæst hjá Íhlutum í Skipholti.
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 12:52:07
eftir Spitfire
Takk fyrir þessar upplýsingar kæri doktor, þetta kemur sér vel á stöðum sem hafa ekki módelbúð innan seilingar. Það vill koma fyrir það þessar fj.... servóframlengingar gleymist í pöntun, eða þær eru of stuttar.
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 18:42:34
eftir Haraldur
Ég kom mér upp boxi með allskonar tengjum, bæði servo og power. Einnig tangir til að klípa þetta saman. Boxið hefur sparað mér helling. Og svo getur maður stytt þessar leiðslur sem alltaf virðast vera of langar.
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 20:15:59
eftir Eysteinn
[quote=Sverrir]Það eru til ótrúlegustu hlutir í Tómstundahúsinu af þessu smádóti, sumt á fínu verði, annað ekki.[/quote]
Ég tek undir þetta með þér Sverrir. Það er í raun mjög mikilvægt að við (flugmódelmenn) verslum eins mikið og við getum við Tómstundarhúsið. Tómstundarhúsið hefur alltaf verið með þessi grundvallar atriði eins og eldsneyti, og annan bráðnauðsýnlegan búnað fyrir okkur. Ímyndið ykkur Ísland án Tómstundarhúsins?
Kær kveðja,
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 3. Feb. 2012 20:40:18
eftir Messarinn
[quote=Eysteinn][quote=Sverrir]Það eru til ótrúlegustu hlutir í Tómstundahúsinu af þessu smádóti, sumt á fínu verði, annað ekki.[/quote]
Ég tek undir þetta með þér Sverrir. Það er í raun mjög mikilvægt að við (flugmódelmenn) verslum eins mikið og við getum við Tómstundarhúsið. Tómstundarhúsið hefur alltaf verið með þessi grundvallar atriði eins og eldsneyti, og annan bráðnauðsýnlegan búnað fyrir okkur. Ímyndið ykkur Ísland án Tómstundarhúsins?
Kær kveðja,[/quote]
Ég tek undir þetta líka. Ég kem alltaf við í tómstunahúsinu þegar kem til R-víkur og kaupi smádót og skoða plastmódel. Það eru ekki margar búðir á Íslandi sem eru með flugmódel dót svo reynum að kaupa sem mest hjá tómó, Það má ekki gleyma Jóni Péturs sem er líka að flytja inn módeldót og er með umboð hjá Ripmax t.d.
Kv GH
Re: Servó-framlengingar, píanóvírar, tengingar ofl.
Póstað: 4. Feb. 2012 05:47:30
eftir eibsen
Ég verzlaði slatta af smádóti hjá þeim í gær, en þau voru þó ekki með snúnar servo snúrur. Nóg var til af tengjum o.þ.h. Hjá þeim fékkst einnig Carbon Fiber.