Síða 1 af 1

Re: Smáverkfæri í módelsmíðar

Póstað: 16. Mar. 2012 09:34:00
eftir Hreidar
Sælir meistarar, mig langaði að spyrja ykkur hvar þið kaupið verkfæri í þetta hobby hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég er búinn að þvælast svolítið um en hef ekki fundið þau gæði sem mig vantar. Þau verkfæri sem ég hef keypt og prófað eru handónýt. Mig vantar lítil, mjó en sterk hex skrúfjárn, 1,5 - 2,5.

kk, Hreiðar.

Re: Smáverkfæri í módelsmíðar

Póstað: 16. Mar. 2012 10:38:48
eftir Þórir T
Heimsæktu Handverkshúsið, Íhluti í Skipholtinu, Miðbæjarradíó og þessháttarstaði...

Re: Smáverkfæri í módelsmíðar

Póstað: 16. Mar. 2012 11:14:12
eftir Sverrir
Würth og Landvélar|Ístækni ættu að eiga eitthvað fyrir þig.

Re: Smáverkfæri í módelsmíðar

Póstað: 16. Mar. 2012 13:05:16
eftir Gaui
Það má finna hin og þessi verkfæri í Húsó og Býkó, en þó er farið að fækka fínum dráttum þar. Litaland í Borgartúni 16 selur ýmis verkfæri og þar fæst besti sandpappírinn sem hægt er að finna. Tómstundahúsið er með fullt af góðum verkfærum, en þó getur maður þurft að gramsa dálítið vel þar áður en maður finnur eitthvað bitastætt (bílagaurarnir nota hex-járn). Svo er náttúrulega Fossberg og Poulse, en þeir senja alls konar verkfærasett.

Þegar um er að ræða svona sérstaka vöru, eins og sexkanntsett og fasta lykla smærri en 6mm, þá er Ebay besti vinurinn:

http://www.ebay.co.uk/sch/?_kw=hex-driv ... pos=&gbr=1

:cool:

Re: Smáverkfæri í módelsmíðar

Póstað: 16. Mar. 2012 13:22:14
eftir Hreidar
Takk fyrir ábendingarnar, ég fór í Handverkshúsið og þeir þar bentu mér á Ísól í Ármúla. Þar fann ég flott gæða sett á 7000 kr.

kk, HJ