How I want a drink
alcoholic of course
after the heavy chapters
involving quantum mechanics.
Og finnið nu tengingu vísunnar við það sem gerist í vídjóinu
Re: Með fyrirhafnarmeiri prentunum...
Póstað: 9. Apr. 2013 21:27:50
eftir Agust
Augun mín fóru óvart að sjá einhverja tölu í vísunni semi reynd er óendanlega löng, miklu lengri en þeir fimmtán tölustafir sem svifu fyrir sjónum mínum.
Arkimedes gamli kemur reyndar við sögu, en hann námundaði þessa tölu sem ég sé með tveim tölum, þ.e. tuttuguogtveim og sjö. Hann vissi ekki betur. Hún Rebekka á Ísafirði fer létt með að þylja 86 stafi, enda er hún í 5. bekk.
Er ég volgur?
Re: Með fyrirhafnarmeiri prentunum...
Póstað: 9. Apr. 2013 21:52:52
eftir Björn G Leifsson
Sjóðheitur Ágúst, sjóðheitur.
Yfir San Fransisco var talan prentuð með eitt þúsund mínus einum aukastaf. Reyndar á röngum degi því á degi tölunnar var víst skýjað.
Re: Með fyrirhafnarmeiri prentunum...
Póstað: 9. Apr. 2013 22:06:04
eftir Björn G Leifsson
Dagur þessarar tölu er opinberlega staðfestur tyllidagur í BNA og haldinn hátíðlegur árlega.
Hér er mynd af upphafsmanni þessa hátíðisdags. Á borðinu eru allmargar vísbendingar
Nú gætu menn farið að halda að ég hafi of lítið að gera og ætti frekar að vera að smíða flugmódel. Það er alveg hárrétt hjá ykkur
Re: Með fyrirhafnarmeiri prentunum...
Póstað: 9. Apr. 2013 22:39:51
eftir Agust
Hver átti afmæli þennan sama dag?
Re: Með fyrirhafnarmeiri prentunum...
Póstað: 11. Apr. 2013 14:31:51
eftir Agust
[quote=Agust]Hver átti afmæli þennan sama dag?[/quote]
Það er Einstein sem á afmæli á Pí deginum 14. mars. 14. mars er skrifað á amerísku sem 3.14 en það eru fyrstu þrír stafirnir í Pí.