Á einum stað talar hann um að hann sé hissa á að "foam safe" skyndilímið hafi brætt gegnum frauðið þar sem hann var að festa rörin fyrir hallastýris-stangirnar.
Sumar tegundir af skyndilími eru kallaðar "foam safe" því þær innihalda ekki leysiefni sem bræða/leysa frauðplastið en það getur samt bráðnað undan því ef mikið er notað á sama stað.
Það sem gerist er að hitinn, sem myndast þegar skyndilímið harðnar, bræðir frauðið. Það verður bara verra ef notaður er Kicker því þá myndast meiri hiti á skömmum tíma.
Skyndilím er fínt til margra nota en ekki nota mikið af því á litlu svæði.