Síða 1 af 1

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 2. Sep. 2013 23:56:11
eftir einarak
92" Edge (60cc stærð)
Hacker mótor og CC hraðastyllir. Magnað einsog vanalega hjá kvikindinu


Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 3. Sep. 2013 17:27:05
eftir Gauinn
Er ekki til svipuð vél hérna? Ég meina sem getur svipað? =)

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 3. Sep. 2013 19:16:06
eftir arni
Einar.Rafmagnið er málið.
Kveðja.Árni F.

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 3. Sep. 2013 20:22:10
eftir Agust
Það þarf ekki að koma á óvart að nú eru allir að fara yfir í rafmagnið og gámarnir í Góða hirðinum eru að fyllast af bensín- og spíramótorum...

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 3. Sep. 2013 21:04:03
eftir Sverrir
Ætli það verði ekki smá bið á bensínmótorunum. ;)

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 4. Sep. 2013 00:19:48
eftir Pétur Hjálmars
Spírinn er alltaf góður.
Rafmagnið verður bara viðbót.

Ekkert hverfur alveg nema á mjög löngum tíma.
Ég er enn og verð áfram á 35 mHZ.

Stýringin mín er 24 ára og Bensinn minn er 27 ára.
Ég sé enga ástæðu fyrir að henda góðum hlutum,
það vara bara 2007 stefnan.

Framþróun er alltaf góð en hún á ekki alltaf við.

Enþá eru tímarit í mikilli sölu, þó svo að veralarvefurinn sé með miklar upplýsingar.

Piper Cub mót eru enn haldin, þó svo að einhver hafi sagt þau tímaskekkju á sínum tíma (17 ár).
Skalamót eru líka haldin við góðan orðstír.

Ekki vil ég skipta, þó komin séu gerfi nýru og hjörtu,
ekki nema ég neyðist til þess.

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 4. Sep. 2013 06:43:13
eftir Agust
:)

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 4. Sep. 2013 09:33:54
eftir einarak
[quote=arni]Einar.Rafmagnið er málið.
Kveðja.Árni F.[/quote]

já það er allavega spennandi, bókstaflega

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 4. Sep. 2013 14:17:50
eftir Haraldur
[quote=einarak][quote=arni]Einar.Rafmagnið er málið.
Kveðja.Árni F.[/quote]

já það er allavega spennandi, bókstaflega[/quote]

Eini gallinn að þegar þetta er orðið svona stórt þá eru rafhlöðurnar mjög dýrar, hleðslutækin dýr etc.

Re: Joe Smith frændi minn að leika sér með rafmagnsflugvél

Póstað: 6. Sep. 2013 22:57:49
eftir Pétur Hjálmars
Við meigum aldrei mótmæla neinni breytingu eða framþróun að neinu tagi.
Við tökum öllu með opnum huga, þá fer vel.

Módelmenn hafa alltaf notið góðs af þróun hernaðar og vísinda á öðrum vettvangi.
Þannig höfum við geta gert okkar módel og viðmót betri.

Framþróun okkar í módel-bransansanum kemur oftast frá hernaði eða
geimvísinda-geiranum.
Eins slæmt og það er nú.

Með bestu kveðu.....