Flott myndband frá David Windestål!

Kanntu skemmtilegar sögur? Eða veistu um sniðug vídeó?
Passamynd
Árni H
Póstar: 1602
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Árni H »

Passamynd
Gaui
Póstar: 3836
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Gaui »

Ég veit ekki hvað það er með mig, en mér finnst margar mínútur af svona spaðahangsi ekkert meira spennandi þó það sé fullt af reyk og kvikmyndað úr fjölþyrlu!

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
lulli
Póstar: 1311
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir lulli »

[quote=Gaui]Ég veit ekki hvað það er með mig, en mér finnst margar mínútur af svona spaðahangsi ekkert meira spennandi þó það sé fullt af reyk og kvikmyndað úr fjölþyrlu!

:cool:[/quote]

hehe,,common Gaui :) þú gefur nú gaurnum smá kreditt fyrir að draga rudderinn eftir vatnsborðinu í viðsnúnum harríer... er það ekkí?
..annað væri það nú :)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir einarak »

[quote=lulli][quote=Gaui]Ég veit ekki hvað það er með mig, en mér finnst margar mínútur af svona spaðahangsi ekkert meira spennandi þó það sé fullt af reyk og kvikmyndað úr fjölþyrlu!

:cool:[/quote]

hehe,,common Gaui :) þú gefur nú gaurnum smá kreditt fyrir að draga rudderinn eftir vatnsborðinu í viðsnúnum harríer... er það ekkí?
..annað væri það nú :)[/quote]


Neibb! ef það er ekki pönnukökuflug með þriggja punkta lendingu (hjól, vængendi og proppur) þá er það ekkert varið í það :D
Passamynd
Gauinn
Póstar: 603
Skráður: 29. Maí. 2012 23:24:07

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Gauinn »

Mér finnst allt skemmtilegt við þessa dellu. Fjölbreytileikinn óendanlegur, félagsskapurinn þó langbestur.
Ég er líka fornbíla áhugamaður, sama þar.
Ég er líka með ljósmyndadellu og alveg það sama.

Skemmtilegt er við þetta allt, hvað menn skipta sér í flokka og eru trúir sinni samfæringu.
Sumir vilja frauðið, aðrir sjá ekkert nema balsann, sumir ....já bara nefndu það.
Sumir vilja ekkert nema bandarískar bifreiðar, sumir mega ekki heyra minnst á innflutta fornbíla sumir.....já bara nefndu það.
Sumir ákvarða getu sína í lengd linsunnar, sumir mega ekki heyra minnst á Photo Shop,.....sumir...
Er ekki lífið dásamlegt?
Langar að vita miklu meira!
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Agust »

Gaui: Af hverju ætli þessir menn séu að vesenast með að hafa vængi á flugvélum þegar þeir kunna ekki að fljúga með þeim, heldur rembast prumpandi hvítum reyk eins og naut í flagi við að koma í veg fyrir að flugvélarnar falli á afturendann til jarðar. Skilekki...
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Agust]Gaui: Af hverju ætli þessir menn séu að vesenast með að hafa vængi á flugvélum þegar þeir kunna ekki að fljúga með þeim, heldur rembast prumpandi hvítum reyk eins og naut í flagi við að koma í veg fyrir að flugvélarnar falli á afturendann til jarðar. Skilekki...[/quote]

Vængina þarf til þess að halda á móti snúningskrafti (torkinu) í hreyflinum.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3836
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Gaui »

Einhver sagði: "Heimurinn er stórkostlegur staður fullur af fólki sem er að bíða eftir að móðgast út af einhverju." Ég held það séu álíka margir í heiminum sem eru að reyna að misskilja mann!

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Agust
Póstar: 2986
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir Agust »

Það væri auðvitað miklu tilkomumeira að sjá þessar vélar spóla vængjalausar í loftinu :p
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Flott myndband frá David Windestål!

Póstur eftir einarak »

Enginn móðgaður og þetta er allt saman jafn skemmtilegt. Hvort sem það er spaðahang eða þriggja puntka lendingar, frauðplast eða trefjaplast, að líma saman balsa eða að dreifa honum um alla flugbrautina osf.. :D
Svara