Re: Skuggalega góðir þessir Aerobeez gaurar Santiago og Pete
Póstað: 22. Ágú. 2014 02:44:34
eftir maggikri
Sjáið þetta. Skuggalega góðir!
kv
MK
Re: Skuggalega góðir þessir Aerobeez gaurar Santiago og Pete
Póstað: 22. Ágú. 2014 09:20:31
eftir Gaui
Er það einhver tilviljun að þetta eru allt unglingar? Hvar eru gömlu kallarnir sem fljúga þrídí?
Re: Skuggalega góðir þessir Aerobeez gaurar Santiago og Pete
Póstað: 22. Ágú. 2014 10:05:57
eftir Haraldur
[quote=Gaui]Er það einhver tilviljun að þetta eru allt unglingar? Hvar eru gömlu kallarnir sem fljúga þrídí? [/quote]
Þessir "gömlu" eru búnir að fatta að flugvélin getur líkað flogið áfram.
Re: Skuggalega góðir þessir Aerobeez gaurar Santiago og Pete
Póstað: 22. Ágú. 2014 10:48:18
eftir Agust
[quote=Gaui]Er það einhver tilviljun að þetta eru allt unglingar? Hvar eru gömlu kallarnir sem fljúga þrídí?
[/quote]
Ég held að þetta sé ekki tilviljun. "Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja".
Það er einu sinni þannig að á ákveðnu aldursbili er auðveldara að læra eitthvað nýtt og flókið. Tímabilið er nokkurn vegin frá fæðingu til þrítugs. Jafnvel eins árs börn læra að ganga og tala.
Annað er að unglingar eru miklu kaldari og djarfari en þeir sem eldri eru. Þora að taka áhættu. Stundum kannski fífldjarfir.