Hver ætlar að verða fyrstur hér á landi til að smíða svona þyrlu og setja í loftið?
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 12. Jan. 2015 22:51:55
eftir Pétur Júlíus
Magnað! hvað segja hipparnir við þessu?
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 13. Jan. 2015 09:09:03
eftir Jónas J
Þetta er annsi svalt hjá þeim
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 13. Jan. 2015 23:23:21
eftir Sverrir
Ég er meira fyrir flugvélar!
[facebook]697572010342013[/facebook]
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 14. Jan. 2015 12:43:43
eftir JVP
Úff!
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 2. Feb. 2015 20:59:21
eftir Sverrir
Re: Fjör í Tælandi
Póstað: 3. Feb. 2015 16:53:42
eftir Björn G Leifsson
[quote=Sverrir]Ég er meira fyrir flugvélar!
>>>>>Myndband af heimasmíði í Afríku<<<<<<
[/quote]
Skemmtilegt afbrigði af Cargo-cult. Vonandi fór strákurinn sér ekki að voða :/
Stutt skýirng fyrir þá sem ekki nenna að lesa áhugaverða og ítarlega greinina á Wikipedia um Cargo cult:
Cargo-cult er nafn sem varð til um mjög áhugavert fyrirbæri, eins konar sjálfsprottin trúarbrögð þar sem veraldleg gæði eru tilbeðin.
Þessu fyrirbæri var einna fyrst lýst eftir heimstyrjöldina síðari þegar íbúar Melanesíu reyndu með eftirlíkingum að fá til baka amerísku flugvélarnar með allt góðgætið sem kanarnir höfðu komið með á leið sinni yfir Kyrrahafið i stríðinu.
Íbúarnir höfðu séð að kanarnir ruddu flugbrautir, settu upp lendingarljós og flugturna og málmfuglarnir komu þá svífandi ofan af himnum og út úr þeim kom súkkulaði og Coca Cola og annað æðislegt „cargo“.
Eftir stríð hurfu kanarnir en íbúana langaði auðvitað í meira af þessum góðu vörum. Þá reyndu þeir að ryðja brautir, byggja hrófatildur sem líktust flugturnum og kveikja á blysum og biðja til hvítu mannana í þeirri von að það kallaði skínandi málmfuglana aftur niður af himnum með vörurnar.