Veit ekki hvort þetta eigi heima hérna, en læt þetta flakka. Bráðsniðugt kvekendi.
Re: Sjúkra-dróni
Póstað: 7. Ágú. 2017 15:28:38
eftir Gaui
Já, já, það er allt hægt í teinkimyndum
Re: Sjúkra-dróni
Póstað: 7. Ágú. 2017 17:13:34
eftir arni
Það væri gott fyrir okkur í Þyt að eiga svona græju,meðalaldurinn er orðinn svo hár.
Kær kveðja.Árni F.
Re: Sjúkra-dróni
Póstað: 10. Ágú. 2017 23:59:03
eftir Björn G Leifsson
Þetta er nú svolítið til áranna komið „fake it before you make it“ myndband sem lýsir hugmynd, ekki tilbúinni lausn Væri fróðlegt að vita hvort eitthvað varð úr þessu hjá þeim?
Annars er gaman að segja frá því að Hjörtur Geir, sem margir ykkar þekkja úr módelfluginu, varði meistaraverkefni við rafmagnsverkfræðideild DTU í Kaupmannahöfn sl. föstudag. Hann hannaði, smíðaði og forritaði dróna frá grunni sem getur sjálfvirkt fundið og fest sig á háspennulínur og ekið eftir þeim. Fékk hæstu mögulega einkunn fyrir verkefnið. Hann á vonandi eftir að segja frá því hér þegar hann er búinn að jafna sig.
Svo er yngri bróðir Hjartar, liðtækur módelflugmaður líka, á leið til TU-Delft í haust í sitt meistaranám í stýritækni/vélaverkfræði. TU-Delft er einmitt háskólinn í Hollandi þaðan sem myndbandið hér að ofan er frá.
Re: Sjúkra-dróni
Póstað: 11. Ágú. 2017 07:21:57
eftir maggikri
Til hamingju með drengina "Flugdoktor", þeir eru efnilegir. Væri alveg til í að sjá þá meira í módelfluginu, ásamt pabbanum.
kv
MK
Re: Sjúkra-dróni
Póstað: 11. Ágú. 2017 09:00:13
eftir Björn G Leifsson
[quote=maggikri]Til hamingju með drengina "Flugdoktor", þeir eru efnilegir. Væri alveg til í að sjá þá meira í módelfluginu, ásamt pabbanum.
kv
MK[/quote]
Takk. Nú er brátt von á breytingu á starfsvettvangi hjá mér, hætti þessari útlandavinnu, svo það er aldrei að vita hvað þú ert að kalla yfir ykkur. Kannski vissara að menn fari að setja upp hjálma og hlífar og skaffi svona hjartastuðtæki ef gamli maðurinn fer að reyna að þenja vængina aftur :O