Modell Antriebe nefnist vefverslun sem sérhæfir sig í rafmagnsmótorum og tilheyrandi. Ég pantaði nýlega mótor og meðlæti frá versluninni og átti ánægjuleg samskipti við eigandann sem heitir Martin Helmschrott-Runge.
Þegar ég opnaði pakkann kom í ljós innan um allt módelgóssið pakki af Zitronen Creme-Schokolade
Þessi póstverslun er gullnáma fyrir alla sem unna rafmagnsflugi.
www.modellantriebe.de
Vefverslun í Þýskalandi
Re: Vefverslun í Þýskalandi
Hvernig smakkaðist svo sítrónusúkkulaðikremið ? :rolleyes:
Icelandic Volcano Yeti
Re: Vefverslun í Þýskalandi
Er þetta ekki módellím? Ætli það smakkist þá ekki eins og bakhliðin á frímerki?
Re: Vefverslun í Þýskalandi
Nú veit ég ekki, þekki ekki svona framandi nýlenduvörur
Icelandic Volcano Yeti