Síða 1 af 1

Re: Módelbúðir í Toronto?

Póstað: 18. Okt. 2014 14:22:26
eftir Björn G Leifsson
Er i nokkra daga i Toronto. Einhver sem hefur fundið/skoðað módelbúð hérna?

Re: Módelbúðir í Toronto?

Póstað: 22. Okt. 2014 00:25:06
eftir Björn G Leifsson
Ég næ líklega ekki að elta uppi módelverslun hér í Toronto í þetta sinn. Fann eina á netinu sem hljómaði sennilega http://www.johnshobbies.ca/main/ en konurnar stræka á að missa Molltíma í svoleiðis ferðalag ;)

Eina flugsafnið á svæðinu missti húsnæðið 2011 þegar því var breytt í íþróttamiðstöð svo nú eru munirnir í gámum einhvers staðar.

Ég fann þó þennan DHC Beaver hangandi í alveg svakalegri útivistarbúð í Vaughan Mills verslunarmiðstöðinni:
Mynd
Inngangurinn í búðina er undir foss :)
Mynd

(iPad myndir í lélegri birtu)

Fyrir útivistarvörur á er þessi búð engum lík. Veiðistangaskógurinn sennilega rúmur hálfur hektari. Bara veiðibogadeilidin er á stærð við Útilíf í Glæsibæ :)

Re: Módelbúðir í Toronto?

Póstað: 22. Okt. 2014 05:02:44
eftir maggikri
Keyptu bara Beaverinn!
kv
MK

Re: Módelbúðir í Toronto?

Póstað: 22. Okt. 2014 11:01:01
eftir Gaui
[quote=Björn G Leifsson]... en konurnar stræka á að missa Molltíma í svoleiðis ferðalag ...[/quote]

Einfalt mál: Gauinn segir "Skildu þær þá bara eftir í mollinu -- þær hafa hvort eð er ekkert vit á módelvörum!"

:cool: