Þegar flensan lagðist yfir hafði maður loksins tíma til þess að kíkja yfir símann og skoða hvað síðastliðið ár hafði að færa. Þegar grannt var skoðað rifjaðist upp að veðrið um sumarið var að mestu leyti ömurlegt og einnig að ég hafði verið mikið í burtu fyrrgreint "sumar"- sennilega var ég bestu flugdagana í burtu úr bænum eða erlendis. Það mun líka verða sett á agendu þessa árs að reyna að komast flugkomur og mót fyrir sunnan en það fórst alveg fyrir hjá mér á síðasta ári.
Þetta endurspeglast í annálnum þar sem flestar myndir tengjast Slipp og Skúr en einnig sést að Helmut átti gott ár (að mestu leyti...). Einnig bregður fyrir gömlum úrillum kunningja sem er ekki alveg sáttur frekar en fyrri daginn...
Megi svo 2020 verða okkur öllum farsælt flugár!
Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
Re: Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
Góður! Árni þú ert nú nokkuð flottur þegar þú tekur þig til og setur saman í annál. Við sunnanmenn með myndablætin þekkjum það. Frauðið er geggjað!
kv
MK
kv
MK
Re: Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
Þakka þér fyrir Maggi! Engin ferð á völlinn nema taka fullt af myndum - þekki það...
Re: Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
Já Árni minn svona er það þegar menn frelsast!
En sá ég rétt, heimsóttirðu stórvini mína hjá Falken í fyrra?
En sá ég rétt, heimsóttirðu stórvini mína hjá Falken í fyrra?
Icelandic Volcano Yeti
Re: Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
[quote=Sverrir]Já Árni minn svona er það þegar menn frelsast!
En sá ég rétt, heimsóttirðu stórvini mína hjá Falken í fyrra?[/quote]
Já, það vill svo til vel til að guttinn minn keypti hús þarna skammt frá þannig að ég skrapp í vettvangsrannsókn enda stórskemmtilegur klúbbur. Það var að vísu enginn við þegar ég kom en það verður bætt úr því næst...
En sá ég rétt, heimsóttirðu stórvini mína hjá Falken í fyrra?[/quote]
Já, það vill svo til vel til að guttinn minn keypti hús þarna skammt frá þannig að ég skrapp í vettvangsrannsókn enda stórskemmtilegur klúbbur. Það var að vísu enginn við þegar ég kom en það verður bætt úr því næst...
Re: Flugmódelfélag Akureyrar 2019 - séð með augum Huawei (og Árna Hrólfs)
Vel valið hjá honum, það eru flottar samkomur þarna hjá þeim köppunum!
Icelandic Volcano Yeti