Re: Módelflug á sjötta og sjöunda áratug tuttugustu aldar
Póstað: 9. Mar. 2016 10:20:52
Einar Páll Einarsson lýsir hér því sem fyrir augu ber.
Top Flite Taurus, þetta var fyrsta alvöru listflugvélin sem smíðuð var hér, mig minnir að þetta hafi verið 1965. Þá fengum við að fljúga á títtnefndri neyðarbraut á Reykjavíkurflugvelli.
Vængur sem faðir minn (Einar Pálsson) smíðaði einhvern tíma fyrir 1950, módelið heitir ERWA 8 og var þýsk hönnun. Pétur Filippusson aðstoðaði pabba vid flugið.
Sviffluga var frá Graupner og heitir Trabant, vænghaf var um 2 metrar, þessari svifflugu var heilmikið flogið. Ungi pilturinn(EPE) sýndi þessu áhuga og hefur verið nettur áhugamaður í módelsportinu síðan þá. Þetta er ca. 1956.
Pétur Filippusson með Falcon 56 frá Carl Goldberg, þetta var fyrsta alvöru vélflugan sem ég átti ca. 1960.
Á Sandskeiði, þarna er Pétur Filippusson og Jón V. Pétursson og Kristinn bróðir Jóns og Kristinn frændi Jóns ad gera Amigo klára í prufurennsli, aðrir á myndinni eru Einar Páll og Hörður Hjálmarsson og á vappi aftan við þá er Magnús Ingólfsson sem var frábær smiður.
Einar Páll i Heiðmörk neðan vid Hjalla, þetta er ca. 1964, með svifflugu sem Einar Pálsson teiknaði og reyndist hún ákaflega vel, þarna flaug hjá ein þota frá Varnaliðinu (F-102 Delta Dagger) og hallaði sér huggulega til okkar, einnig er þarna sma skot af Amigo.
Sviffluga Einars Páls Einarssonar á Sandskeiði.
Hörður Hjálmarsson og Einar Páll Einarsson, Hörður med Bergfalke og Einar Páll med eigin teiknaða svifflugu, þetta er við Leirtjörn.
Kvikmyndir úr safni Einars Páls Einarssonar, tekið af Einari Pálssyni og Einari Páli Einarssyni.