Síða 1 af 1

Re: Tímaritið Módelflug

Póstað: 19. Des. 2018 22:46:38
eftir Sverrir
Það var snemma á níunda áratugnum sem hópur flugmódelmanna tók sig til og vann að gerð bæklings, að eigin sögn en þetta eru 48 blaðsíður svo tímarit væri nær lagi og ég leyfi mér að nota það, sem fékk nafnið Módelflug. Þeir sem að þessu stóðu voru þeir Ásbjörn Björnsson, Ólafur Sverrisson, Stefán Sæmundsson, Einar P. Einarsson, Jón V. Pétursson og Guðjón Ólafsson.

Sannarlega stórhuga menn þar á ferð og gaman að þessu, efnið þarna á enn fullan rétt á sér og er fróðlegt að lesa í gegnum það. Spurning hvort við ættum að huga að nýrri uppfærði útgáfu svona í tilefni af tilvonandi 40 ára afmæli þessa blaðs!?

Mér barst nýlega eintak í hendurnar sem ég tók mig til og kom yfir í tölvutækt form en einnig má nálgast vefútgáfu sem Guðjón Ólafsson gerði aðgengilega fyrir nokkru síðan.

Mynd

Re: Tímaritið Módelflug

Póstað: 20. Des. 2018 08:15:24
eftir stebbisam
Merkilegt hvað efnið hefur staðist tímans tönn, flest ennþá í fullu gildi. Myndirnar rifja upp skemmtilegar minningar frá þessum tímum. Þökk sé ykkur Guðjón og Sverrir fyrir að koma þessu merkilega riti á nútímalegra form.

Re: Tímaritið Módelflug

Póstað: 20. Des. 2018 09:55:12
eftir maggikri
Flott tímarit. Svo sannarlega voru menn stórhuga þarna. Ég er búinn að vera í þessu flugmódelsporti í hátt á þriðja áratug, en hef aldrei séð þetta blað fyrr en nú, eða man ekki eftir því.
kv
MK

Re: Tímaritið Módelflug

Póstað: 2. Jan. 2020 19:03:40
eftir Sverrir
1985 telur Landsbókasafnið á að sé útgáfuárið.