Síða 1 af 2

Re: JWM 2013

Póstað: 23. Ágú. 2013 12:40:00
eftir Sverrir
Stendur yfir þessa dagana og eins og venjulega þá eru rússarnir duglegir að senda frá sér vídeó.


Re: JWM 2013

Póstað: 24. Ágú. 2013 01:13:47
eftir Pétur Hjálmars
Hann er ekki ánægður með sum módel vegna frágangs á sumum smáatriðum.
Fest eru flott í 2ja metra fjarlægð, ekki er gott að koma nær , þá hverfur skalinn.

Fjöllin og umhverfið eru frábær, öll umgjörð eru til fyrirmyndar.
hvernig verður morgundagurinn, sagði okkar ágæti eftirlitsmaður.


Þá hvarlar hugurinn til okkar ágæta Íslands.

Melgerðismelar hafa umhverfið og fjöllin, en veðrið er oftast vandamálið, ekki módelin.
Norðanmenn standa alltaf fyrir flottri umgjörð og grilli,.
Ekkert hefur klikkað hjá þeim
öll þau ár sem ég hef heimsótt þann stað.

Takk fyrir 2013 norðanmenn.

Re: JWM 2013

Póstað: 24. Ágú. 2013 07:58:30
eftir Sverrir



Fiat-inn lítur ekki illa út!
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: JWM 2013

Póstað: 27. Ágú. 2013 11:09:43
eftir Sverrir
Ítalirnir fengu fleiri stig í static hlutanum heldur en Rússarnir, þeir eru betri flugmenn líka svo nema eitthvað mikið gerist þá stefnir allt í að titilinn fari til Ítalíu.

Hér er svo Yak flug frá upphafi til enda.



T-33 frá Þýskalandi.

Re: JWM 2013

Póstað: 28. Ágú. 2013 12:20:40
eftir Sverrir
Fjör farið að færast í leikinn!

Rússarnir búnir að kæra einn Ítalann, segja að hann hafi tekið myndir af módelinu og notað sem „ljósmynd af fullskala fyrirmynd“ í keppnisgögnum. Ef svo er þá segir það enn meira um gæðin á módelinu! En að öllu gamni slepptu þá er verið að skoða málið. Menn töldu það hafa verið leyst seinni part mánudags en svo komu Rússarnir með ný sönnunargögn í gær.


Mótorinn var sérsmíðaður til að hafa hann sem léttastann svo meiri vigt væri eftir fyrir skaladótið.



Aðeins of mikið fjör í fyrstu beygjunni eftir flugtak!

Re: JWM 2013

Póstað: 30. Ágú. 2013 17:24:06
eftir Sverrir
Og búið að dæma Fiat-inn úr leik, nú eru víst líka uppi efsemdir um keppnisgögnin sem voru lögð fram í 2011 keppninni af sama aðila fyrir aðra vél sem hann notaði þá. Sorglegt þegar menn sem eru greinilega mjög hæfileikaríkir þurfa að fara niður á þetta plan!

http://www.ijmc.net/news/2013-08-press/ ... lease.html


Mynd


Mynd úr keppnisgögnum sem var á Wikipedia.
Mynd

Full skala mótorinn.
Mynd

Mynd af Wikipedia, fer lítið fyrir flugmanninum.
Mynd

Módelið
Mynd

Fullskala
Mynd

Sjá myndir á Wikipedia > http://commons.wikimedia.org/wiki/Speci ... irComplete
Mynd

Re: JWM 2013

Póstað: 30. Ágú. 2013 18:13:33
eftir Spitfire
Módelið er fjandi flott en svona svindl í keppni er á pari við útúrsteraðan Jamaíkabúa á hlaupabrautinni á Olympíuleikum, og jafn virkilega sorglegt að sjá :mad:

Re: JWM 2013

Póstað: 30. Ágú. 2013 22:12:23
eftir Pétur Hjálmars
Takk, takk Sverrir, þetta er súper efni.

Maður fær ólgu (góða ólgu) í magann yfir svona myndskeiðum.

Hvenær förum við á svona samkomu ?,
félagi Sverrir ?.

Re: JWM 2013

Póstað: 30. Ágú. 2013 22:16:59
eftir Sverrir
Hún er í Þýskalandi 2015! ;)

Re: JWM 2013

Póstað: 31. Ágú. 2013 13:05:57
eftir Gaui
Fimmta lögmál Platts er:

"Competitive scale modeling is about replication, not authentication."

Þetta þýðir að í skalakeppni á að fylgja því sem er á fyrirmyndinni, ekki sýna það sem ætti að vera. Mér sýnist að þessir Ítalir hafi mölbrotið þetta lögmál.

:cool: