Síða 2 af 3

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 20. Sep. 2010 22:15:33
eftir reynir
Ljómandi. Takk fyrir þetta.

Eins og mér skilst, þá eru A123 rafhlöður ekkert annað en LiFe. Nú vill Duralite framleiðandinn meina að það þurfi sérstakt hleðslutæki gefið út fyrir A123 til að hlaða rafhlöðuna.

Þá vaknaði upp sú spurning hvort það sé ekki nóg að hafa hleðslutæki gefið út fyrir LiFe.
Einhver sem þekkir þetta?

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 20. Sep. 2010 22:39:06
eftir Sverrir
Jú LiFe er stillingin sem þú þarft.

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 21. Sep. 2010 08:27:33
eftir INE
Kæru Vitringar...

Ég er með spurningu varðandi þetta umræðuefni: er hægt að fá spennujafnara eða BEC sem tekur 3S 11.1V 3300 mAh rafhlöðu og tekur hana niður í ca 5V fyrir móttakara? Á svona rafhlöðu ónotaða og gæti hugsað mér að nota með AR7000 móttakara sem er ekki með innbyggðan spennujafnara.

Kveðja,

Ingólfur.

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 21. Sep. 2010 11:51:50
eftir Agust
Kannski þetta sem er vinstra megin: http://www.castlecreations.com/products/ccbec.html

Þolir 5A við spennu 12V - 24V. (7A við lægri spennu en 12V)

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 21. Sep. 2010 12:44:51
eftir Gunni Binni
Eins og venjulega vísa ég til vina minna kínverjanna, en á þessarri síðu eru nokkrir sem geta þetta og ef ég skil þá rétt er best að nota switching BEC sem framleiðir ekki eins mikinn hita.
http://www.hobbyking.com/hobbyking/stor ... entCat=182
Hef sjálfur notað svona í ElCorinn og virkaði fínt, þ.e. sama batterí fyrir mótor og móttakara. Meira öryggi er nú samt að hafa 2 batterí fyrir það.
kveðja
Gunni Binni

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 21. Sep. 2010 15:32:11
eftir einarak

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 21. Sep. 2010 15:40:14
eftir Sverrir
Of lítill en það eru aðrir sem hægt er að nota á hlekknum frá GB.

[quote]Spec.
Input: 6.6~8.4V (2 cell Lipoly) [Two battery or two conn. to the same battery]
Output: 5.9V(+/-0.5V)
Max Load: 8A
Weight: 49g
VR Mode: Linear[/quote]

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 22. Sep. 2010 17:57:43
eftir INE
Sendi fyrirspurn á verslun í Usa og fékk ráðleggingu að versla frá MPI:

http://www.maxxprod.com/mpi/mpi-21.html ... e%20Switch

Kveðja,

Ingólfur.

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 22. Sep. 2010 18:22:24
eftir Sverrir
Eru menn þá að spá í Mk3 eða 6V græjunum?

Re: LIPO rafhlöður fyrir móttakara?

Póstað: 27. Sep. 2010 17:43:43
eftir lulli
Þessu tengt,,Þá ætlaði ég að reyna að hlaða Duralite 7,4v. lithium-ion
"No Luck" amk ein sellan virðist sofa svo fast að ekki tekst að vekja upp hleðslu.
Ég get því ekki annað en sperrt upp eyrun við öðrum lausnum eins og A123.
Ætli Duralite hleðslutækið höndli A123 ? Spyr sá er ekki veit =)