2.4 GHz fyrir jr frá HK
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Nú er ég búin að prófa báða móttakarana i innifluginu og þar svinvirka þeir. Næst verða þeir testaðir úti á Arnarvelli
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Spurning strakar. Eg se ad thid erud endalaust ad panta eitthvad utan ur heimi, er thetta bara ekkert mal og ekkert mikid dyrara eda hvad? Er thetta aldrei vesen i tollinum t.d.?
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Ekkert vesen í tollinum þannig lagað, stundum dagamunur á því hvaða skjöl duga þeim til að samþykja tollagreiðsluna, oftast þarf einhverja sundurliðun á innihaldinu. Borgar svo bara þín 10%(stundum meira, stundum minna) í vörugjöld og 25% VSK + póstafgreiðslugjald og þá eru allir vinir.
Icelandic Volcano Yeti
- Gunni Binni
- Póstar: 597
- Skráður: 7. Apr. 2008 23:26:17
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Þó ber að geta þess að amk fjarstýringar verða að vera CE-merktar, annars fargað eða endursendar, þó stundum sleppi þær í gegn.
kv.
Gunni Binni
kv.
Gunni Binni
- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Eitt ráð til að spara krónur.
Ef það er nokkur möguleiki að eitthvað efni, verkfæri eða annað í sendingu sé hægt að nota í annað en "leikföng" (sem þeir því miður kalla alvarlega dótið okkar:) ) það er að segja ekki sértækt módeldót þá á ekki að vera tollur á því. Til dæmis skrúfur, spýtur, teinar, koltrefjastangir, frauðplast, plastfilma og þvíumlíkt. Þetta getur alveg eins verið efni í eitthvað annað.
Ef maður er með lista yfir hitt og þetta á reikningum þá er sjálfsagt að merkja við fyrir tollarann hvað á listanum ekki er sértækt módeldót. Þeir setja það gjarnan í mismunandi tollflokka.
Ég var einu sinni spurður hvað væri í sendingu af fínum servóum. Svaraði "Stýrisvélar í flugvél" og þeir settu ekki tíundina á í það skiptið.
Ekki ósatt, bara sagt á réttan hátt
Ég reyndi þetta sama við DLE 55 mótorinn sem á að draga fjósamanninn en pakkafjandinn var merktur af kínverjunum i bak og fyrir þannig að ekki var nokkur leið að villast á því í að kvikyndið væri ætlað í "leikfang". Átti skemmtilegt karp við tollarann um að alveg eins væri hægt að nota mótorinn í mannað flugfar, bara hafa fleiri. Hann var óvitlaus og hafði gaman af öllu saman en stóð sína pligt eins og vera bar og gerði mér að greiða mína tíund til rískissjóðs.

"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
[quote=Björn G Leifsson]Ég reyndi þetta sama við DLE 55 mótorinn sem á að draga fjósamanninn en pakkafjandinn var merktur af kínverjunum i bak og fyrir þannig að ekki var nokkur leið að villast á því í að kvikyndið væri ætlað í "leikfang". Átti skemmtilegt karp við tollarann um að alveg eins væri hægt að nota mótorinn í mannað flugfar, bara hafa fleiri. Hann var óvitlaus og hafði gaman af öllu saman en stóð sína pligt eins og vera bar og gerði mér að greiða mína tíund til rískissjóðs.[/quote]
Ég pantaði tvo DLE 55 frá Kína og slapp við þessa tíund. Þetta er bensín mótor og á ekki að flokkast undir leikfang, svo var ekkert annað flugmódel stuff að þvælast með sendingunni.
Annars er frábær skemmtun að fletta í tollskránni. Ég komst yfir svoleiðis bók og fer alltaf að hlægja þegar ég opna hana .
Kveðja,
Eysteinn.

Eysteinn Harry Sigursteinsson.
I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Ef mönnum vantar léttan lestur fyrir svefinn þá er hægt að nálgast tollskrána sem pdf skjöl.
Icelandic Volcano Yeti
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Þegar ég var að vinna hjá Nonna í Tómstundahúsinu í gamla daga, þá var sagt að það væri einn maður á Íslandi sem skildi tollskrána -- hann væri í bólstruðum klefa á Kleppi
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: 2.4 GHz fyrir jr frá HK
Er hann ekki framhaldsskólakennari í dag?