Síða 1 af 2
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 12:32:42
eftir Agust
Mér skilst að einhverjir hafi verið að framleiða eigin servósnúrur.
Hverjir selja bestu tæki og tól fyrir svona heimilisiðnað?
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 15:32:07
eftir Sverrir
Það er svo langt síðan ég keypti mitt að seljandinn er ekki lengur til!
En þú þarft fyrst og fremst góða
krumputöng og svo gildir það sama í þessu og mörgu öðru, þú þarft að borga aðeins fyrir gæðin þegar kemur að
pinnum og servótengjum, svo má ekki gleyma
vírnum. HobbyKing selur líka pinna og tengi ef menn vilja skoða ódýrari leiðir, kannski fínt að ná sér í hluti til að æfa sig á þaðan.
Sé reyndar núna að ég sit á gullpotti en servósnúrukeflið mitt er búið að hækka um 244% í verði á tveim árum, fínasta ávöxtun það!
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 16:54:20
eftir Spitfire
Thunderbolt RC virðist hafa ágætis úrval af græjum til servosnúrugerðar, bjóða m.a. upp á
Ashlok tengi og fleira.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 17:14:55
eftir Björn G Leifsson
Keypti mér töng og birgðir af tengjum fyrir nokkrum árum. Ómetanlegt.
Fann þessa síðu nýlega og er að spá í að leggja í pöntun af ýmsu dóti þar:
https://www.pololu.com/category/19/connectors
Þarna fást tangir og efni. Hef ekki prófað að panta þarna ennþá en er aðspá í að bæta í mitt safnið t.d. einföldum, tvöföldum, fjórfölum hulsum og ýmsu rafeindadóti.
Þarna fást líka JST tengi, Tamya, XT50 og fleira sem gott er að eiga
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 18:56:13
eftir Haraldur
Íhlutir áttu lengi vel servosnúrur í metra tali.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 20:11:09
eftir einarak
[quote=Haraldur]Íhlutir áttu lengi vel servosnúrur í metra tali.[/quote]
og eiga enn!
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 20:18:24
eftir Agust
Ætli þeir eigi nokkuð servótengi og krumptangir?
Annars var ég að googla í dag og rakst þá á lítið fyrirtæki sem heitir
Hansen Hobbies.
http://www.hansenhobbies.com
Þeir eru með tengi, tangir og tilheyrandi:
http://www.hansenhobbies.com/products/connectors/
Einnig ágætis pdf skjal með kennsluefni:
http://www.hansenhobbies.com/products/c ... ectors.pdf
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 6. Apr. 2015 22:29:43
eftir einarak
gætu átt einhverjar krumptangir, en engin servotengi eins og við viljum hafa þau.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 7. Apr. 2015 11:48:52
eftir Agust
Ég þakka ykkur öllum ábendingarnar. Ég endaði með því að panta kit á $95 frá Hansen Hobbies.
http://www.hansenhobbies.com/products/c ... ck_drcck1/
Það verður mikill munur að geta útbúið snúrurnar sjálfur.
Re: Framleiðsla á servósnúrum
Póstað: 7. Apr. 2015 23:12:56
eftir einarak
Þa hefuru keipt sett með strippara? Það er vel valið...