Ég lét plata mig áðan.
Ég hef alltaf haldið að hljóðgjafinn (summerinn eða hátalarinn) væri innbyggður í Jeti hraðastýringunum. Ég er með þannig í Fun-Time og Ultra Stick 25e. Í þeim vélum heyrist heilmikil pípsinfónía fyrst eftir að kveikt hefur verið á módelinu.
Pípið er það hávært að það heyrist marga metra. Álíka og hringing í farsíma. Þetta píp lætur mann vita hvaða stillingar í hraðastýringunni eru virkar og hvort allt sé í lagi.
Áðan var ég að prófa mótorinn í Big Excel. Heyrði nánast ekkert. Hélt að hraðastýringin væri biluð. Átti aðra uppi í hillu og tengdi hana við. Nánast ekkert píp. Smám saman kviknaði á perunni í kollinum. Lagði eyrað að móturnum og lágværa hljóðið kom þaðan.
Teygði mig aftur upp í hillu og tengdi Axi mótor við hraðastýringuna lágværu. Viti menn, nú vantaði ekki ískrið.
Ég vissi það ekki fyrr að Jeti notar mótorinn sem hljóðgjafa. Mótorinn í Big Excel er gíraður inrunner, en hinir mótorarnir eru outrunner. Outrunner mótorinn virkar miklu betur sem hátalari en inrunner!
Svona getur maður verið lengi að fatta. Ég hef alltaf haldi að hljóðið kæmi frá litlum hátalara inni í hraðastýringunni
Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Icelandic Volcano Yeti
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Góður.
Always remember you fly an airplane with your head, not your hands.
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Hann Einar Rúnar /Pitts Boy gæti trúlega frætt okkur pínu um þetta líka, hann er búinn að hlusta á svona sinfóníur ...
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Reyndar stendur þetta í leiðbeiningunum fyrir hraðastilla að hann noti mótorvindingana sem hátalara.
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Það virðist vera að þegar maður er með svona ofur velsmíðaðan mótor (Hacker B50 9L + 6,7:1 gír) þar sem vindingarnir eru væntanlega fastir á sínum stað, þá heyrist varla nokkur skapaður hlutur. Aðeins smá veiklulegt tíst þegar vel er hlustað nærri mótornum. Svipað og suð í mýflugu. Kanski er þetta bara merki um hve vel er gengið frá mótorvöfunum í Hacker.
Ég renndi augunum yfir leiðbeiningarnar með Éti, en sá ekkert minnst á hvaðan hljóðið á að koma. http://www.modelmotors.cz/download/Advance_plus_eng.pdf
Annars var ekki hægt að kvarta yfir kraftinum með CAM-Carbon 18,5" x 12" spaða og 14 V LiPo
http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=260
Ég renndi augunum yfir leiðbeiningarnar með Éti, en sá ekkert minnst á hvaðan hljóðið á að koma. http://www.modelmotors.cz/download/Advance_plus_eng.pdf
Annars var ekki hægt að kvarta yfir kraftinum með CAM-Carbon 18,5" x 12" spaða og 14 V LiPo
http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=260
Re: Hljóðgjafinn í Jeti hraðastýringu
Sjá t.d.: http://centralhobbies.com/download/airboss2.pdf fyrir hljóðdæmið.