Síða 1 af 1

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 11. Maí. 2016 20:12:24
eftir benedikt
Hvernig gerði maður þetta áður!

Mynd

paralell hleðsla - 4 batterí hlaðin á sama tíma - 4x tímasparnaður !

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 11. Maí. 2016 22:38:37
eftir einarak
hvílík veisla, ballancerast öll og allt eins og best verður á kosið?

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 12. Maí. 2016 17:07:45
eftir benedikt
já, þetta er paralell borð með balance pluggum fyrir hvert batterí
það eru viðnám í þessu borði sem taka mesta höggið þegar batteríin eru tengd. Það sem þarf að passa að batteríin séu nokkuð jafn hlaðin þegar þau eru tengd, oft miðað við 100-150mV mun - semsagt ef hver cella á batteríi A er 3.7v þá má næsta batterí ekki vera t.d. 3.85v - betra að aflaða aðeins. Svo bíður maður kanski á 1-2 mín áður en main plug er tengd. Þá hafa batterín jafnað sig.

Tek eftir því að það tekur ögn lengur að hlaða 4 batterí í einu en eitt stakt, en tækið er aðeins lengur að halda balance og klára í rest.

4x 1300mAh batterí eru þá hlaðin á 5.2A - semsagt 1C per batterí

-Benni

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 12. Maí. 2016 17:10:49
eftir benedikt

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 13. Maí. 2016 08:49:51
eftir hrafnkell
Er ekki æskilegt að öll batteríin séu svipað tóm, svipað (jafn?) stór (mAh) og sami sellufjöldi?

Re: Hlaða 8 batterí saman.. eða 2x4

Póstað: 13. Maí. 2016 23:49:22
eftir benedikt
sami sellufjöldi er alveg möst - annað mun enda í flugeldasýningu

sem jöfnust - svona um 0.1v á milli cella.

En, það á víst að vera í lagi að hafa þau mis stór - en ég reyndar hleð batterí sem ég þekki og eru jafn stór.

- Benni