Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir einarak »

[quote=kip]Hvernig klórar maður sér snögglega í *assinum með þetta framan á sér og flugvél á lofti :)[/quote]
it´s quite easy

Mynd
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Heyrðimignú!... hvernig snérist alvarleg spurning um mikilvægt málefni upp í umræu um hvernig maður klóra sér í ,,,eh.. hinum endanum??

:D :D :D :D

Ojæja...


En ég ætla að smíða fín álskíði undir treinerinn. Biðiði bara!
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir Gaui »

Björn. Þú þarft ekki að smíða. Hér eru skíði sem þú getur pantað. Ég á svona og þau virka fínt ef einhver snjór er á jörðu.

http://www3.towerhobbies.com/cgi-bin/WT ... &search=Go
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir einarak »

Ég spurðist eitt sinn fyrir um þetta hér, með að smíða þau úr áli, en þau voru sögð hlaða svo mikið á sig
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Gaui]Björn. Þú þarft ekki að smíða. Hér eru skíði sem þú getur pantað. Ég á svona og þau virka fínt ef einhver snjór er á jörðu.

http://www3.towerhobbies.com/cgi-bin/WT ... &search=Go[/quote]
Jú, ég var næstum búin að kaupa mér svona sett í Osló fyrir jól. Vandamálið var að það voru bara bleik eftir :P það var of mikið fyrir mína veikluðu karlmennskuímynd :D

Núna ætla ég að prófa að smíða eitthvað, mest af því mig langar til þess að prófa það. Er með ákveðna hugmynd sem byggir á tómum rúðupissbrúsa og álprófíl. Sjáum hvað setur
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Flug í frosti - Hvaða lögmál gilda þar?

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Varðandi batteríin þá gúgglaði ég málið og fann að LiIon rafhlöður eru mun betur kuldaþolnar en NiCd eða NiMh. Þetta kom skýrt fram í pælingum um myndavélabatterí og munurinn á frostþoli er af stærðargráðunni -40 stig á móti -20. Hins vegar gildir með öll batterí að orkuskil þeirra minnka í hlutfalli við hitastigið innan ákveðinna marka þannig að það gildir að halda þeim sem næst "eðlilegu" hitastigi.
Það er skynsamlegt geyma vélina/rafhlöðurnar í heitum bílnum eins lengi og hægt er. Sennilega skynsamlegt að hafa svamp eða aðra einangrun utanum móttakarabatteríið svo það haldi hitanum lengur. Svo þegar straumur er tekinn úr því þá verður smá hitamyndun í því sem viðheldur hlýjunni líka.
Með drif-rafhlöður gildir að þær eiga að skila miklum straum og hitamyndun verður talsverð svo þær ætti ekki að einangra en hins vegar passa að halda þeim hlýjum fram að flugi og ef mikið frost þá gæti maður þurft að minnka loftflæðið um þær sem annars þarf að vera til kælingar.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara