Síða 2 af 2

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 18:17:12
eftir Sverrir
[quote=Árni H]Nah - ég fæ alltaf hausverk daginn eftir að ég drekk heitt súkkulaði, a.m.k. á ættarmótum... [url]http://serve.mysmiley.net/innocent/innocent0009.gif[/url][/quote]
Held þú þurfti að kynna þér innihaldslýsinguna betur hjá viðkomandi vertum! Mynd

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 18:43:05
eftir Árni H
Eða kannski er ég bara með ofnæmi fyrir leðri - vakna alltaf með hausverk ef ég sef í skónum :D

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 18:48:06
eftir Sverrir
Mynd

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 20:32:48
eftir Steinar
Sniðugt. Einu sinni gerði ég svipað. Búið að virka í 5 ár.... Hef einusinni þurft að skifta um leddu. Annars bara fínt.

http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=573

KV.SG

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 20:35:05
eftir Björn G Leifsson
[quote=Árni H][quote=Sverrir]Persónulega myndi ég opna búllu sem selur heitt súkkulaði svona miðað við tíðarfarið! ;)[/quote]
Nah - ég fæ alltaf hausverk daginn eftir að ég drekk heitt súkkulaði, a.m.k. á ættarmótum... [url]http://serve.mysmiley.net/innocent/innocent0009.gif[/url][/quote]
Ef þú átt leið suður þá komdu og skoðaðu snertirofadeild smáhlutasafnsins í Walleyhouse Aeroplane Factory. Býð upp á kallakakó.

Mynd
Úrval úr safninu

:D

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 22:33:38
eftir Agust
Ég á tvo rafeindaheila sem sjá um þetta. Þeir eru ættaðir frá SM Services http://www.smservices.net/ og kallast On Board GloSwitch. Kosta £16.95

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 22. Júl. 2011 22:46:18
eftir Agust
Ég hef hliðtengt tvö 2000mAh batterí fyrir svona búnað.

Það er bæði í lagi og ekki í lagi að hliðtengja svona hleðslurafhlöður.

Hliðtengdar NiMh eða NiCd rafhlöður afhlaðast nokkuð jafn ef þær hafa svipaða hleðslu í byrjun. Það er því í lagi þannig séð.

Vandamálið kemur fram við hleðslu, sérstaklega þegar notað er sjálfvirkt hleðslutæki (delta-V) sem slekkur á hleðslunni þegar batteríið er fullhlaðið. Spenna sellunnar fellur örlítið þegar hún hefur náð fullri hleðslu, og það skynjar hleðslutækið. Þegar tvær sellur eru hliðtengdar, þá getur þessi spennubreyting komið fram á mismunandi tíma og breytingin verður þá svo lítil að hleðslutækið fattar það ekki. Slekkur ekki á hleðslunni.


Þrátt fyrir þetta þá hefur það virkað hjá mér að hliðtengja svona AA rafhlöður fyrir glóðina, en rétt er að vera vakandi og fylgjast með hleðslutækinu.


(Það virkar þó vel að hliðtengja blý- og lithium batterí).

Re: Laugardagsföndrið II

Póstað: 29. Des. 2011 22:32:40
eftir einarak
Hérna eru gaukar í Ungverjalandi sem eru með allskonar sniðugar uppfinningar, t.d. þetta onboard glow system sem er forritanlegt, með hljóði, ljósi og fail safe sem er stórsnjallt

http://www.rc-miskolc.emiter.hu/index.p ... &Itemid=98
(skoða líka á síðu 2)


og fyrir þá sem eru farnir að ryðga í ungverskunni:
http://translate.google.is/translate?sl ... 2F&act=url

Svo selja þeir herlegheitin á Ebay og eru ekki dýrir á því 29$