Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Gaui »

5.12 VÆNG GERÐ VALIN (WING TYPE SELECTION)

Tilgangurinn með mismunandi stillanlegum væng gerðum er að koma í veg fyrir allskonar uppsetningar og blöndur sem annars væru nauðsynlegar á ýmsum gerðum flugmódela. Það eru þrjár gerðir vængja sem hægt er að stilla fyrir, eftir því hvað hentar módelinu þínu best: Venjulegt (Normal), Flapastýri (Flaperon) þar sem hallastýri og flapar vinna saman, og Deltavængur þar sem hallastýri og hæðarstýri vinna saman. Hverri væng gerð verður gert skil hér fyrir neðan.

Venjuleg væng gerð (Normal Wing Type)

Þetta er fyrsta væng gerðin sem kemur fram á aðgerðaglugganum. Þessi væng gerð er notuð á öll venjuleg módel þar sem aðeins eitt servó er notað til að hreyfa bæði hallastýri. Sendirinn kemur frá verksmiðjunni með þessa stillingu virka. Það þýðir að ef sendirinn er endurstilltur, þá kemur þessi væng gerð upp aftur. Sendirinn fer líka í þessa væng gerð ef rafhlaðan í honum og lithium batteríið eru bæði fjarlægð úr honum.

Farið í stillingu fyrir venjulega væng gerð

1. Haltu niðri Down og Channel hnöppunum og kveiktu á sendinum til að komast í Kerfisgluggann (System mode).
2. Ýttu á Up eða Down hnappana þar til "WING" kemur í ljós vinstra megin í glugganum. Sú væng gerð sem valin er sést núna ofarlega fyrir miðju: NORM = venjulegur vængur; FLPER = flapastýri; DELT = Deltavængur.
3. Ýttu á (+) eða (-) hnappana til að velja rétta væng gerð.
4. Til að stilla ádreparann ýtir þú á Down hnappinn.
5. Til að stilla stilla rofa fyrir Aux2/Bremsu rásina, ýtir þú á Up hnappinn.
6. Til að fara út úr væng gerða stillingunni ýtir þú á Down og Channel hnappana samtímis.

Athugaðu: Það þarf ekki að tengja servó í neinar auka rásir á móttakaranum þegar venjuleg væng gerð er valin.

Flapastýri (Flapperon)

Þegar flapastýri eru stillt, þá er mögulegt að nota hallastýrin sem flapa. Hægt er að láta stýri síga og rísa saman eins og flapar gera, en á sama tíma geta þau hreyfst upp og niður hvort á móti öðru eins og hallastýri gera venjulega.

Á mynd:
vinstri: Tengdu þetta servó í AUX 1 rásina á móttakaranum
hægri: Tengdu þetta servó í hallastýrisrásina á móttakaranum

Flapastýri stillt
1. Haltu niðri Down og Channel hnöppunum og kveiktu á sendinum til að komast í Kerfisgluggann (System mode).
2. Ýttu á Up eða Down hnappana þar til "WING" kemur í ljós vinstra megin í glugganum. Sú væng gerð sem valin er sést núna ofarlega fyrir miðju: NORM = venjulegur vængur; FLPER = flapastýri; DELT = Deltavængur.
3. Ýttu á (+) eða (-) hnappana til að velja Flapastýris stillingarnar (FLPR)

Athugaðu: Til að hægt sé að nýta flapastýri, þá verður að hafa sér servó fyrir hvort stýri.

4. Settu servóið fyrir vinstra hallastýri í auka rás 1 (AUX 1) á JR móttakaranum. Tengdu servóið fyrir hægra stýrið við hallastýrisrásina (AILE) á móttakaranum.
5. Athugaðu að servóin hreyfist í rétta átt. Til að beygja til hægri ætti hægra hallastýrið að lyftast upp og það vinstra að fara niður um leið. Í vinstri beygju fer vinstra hallastýrið upp, en það hægra niður. Ef servóin fara ekki í rétta átt, þarftu að nota servó snúning til að snúa við virkni servóanna. Skoðaðu kaflann um servósnúning til að sjá hvernig það er gert.

Athugaðu: Það þarf að stilla rétta hreyfingu á hvort servó fyrir sig með Servó snúnings aðgerðinni.

Þegar servóin hreyfast í rétta átt er hægt að stilla hversu mikið þau hreyfast, setja inn mismunandi hreyfingar, auka trimm og veldishreyfingar.

Athugaðu: Hægt er að stilla vinstri og hægri hreyfingar rásanna sérstaklega með því að fara í aðgerðagluggann fyrir hreyfistillingar. Skoðaðu kaflann um hreyfistillingar fyrir frekari upplýsingar. Fínstillingar á hreyfingum stýranna ætti að gera með stillingum fyrir mismunandi hreyfingar (Dual-Rate) Skoðaðu kaflann um mismunandi hreyfingar til að sjá hvernig það er gert. Það er líka hægt að stilla miðjustöðu stýranna hvors um sig með því að nota Auka trimm aðgerðina. Skoðaðu kaflann um auka trimmið til að fá frekari upplýsingar.

6. Flaparofinn er ofarlega til hægri á sendinum og hann stjórnar hreyfingum flapanna.

Athugaðu: Hægt er að stilla inn mismunahreyfingu (Differential) á X-378 sendinum þegar flapastýri eru valin. Skoðaðu kaflann um mismunahreyfingar.

8. Til að stilla ádreparann ýtir þú á Down hnappinn.
9. Til að stilla stilla rofa fyrir Aux2/Bremsu rásina, ýtir þú á Up hnappinn.
10. Til að fara út úr væng gerða stillingunni ýtir þú á Down og Channel hnappana samtímis.

Delta vængur

Síðasta væng gerðin sem hægt er að stilla er Delta vængur. Á þessari gerð flugvéla eru tvö servó fyrir hallastýrin. Það er, hinsvegar, ekkert hæðarstýri. Í staðinn, þegar togað er í hæðarstýrispinnann, þá vinna halastýrisservóin saman og lyfta hallastýrunum saman eða láta þau síga til að fá upp og niður hreyfingar á módelið. Allur vængurinn virkar eins og hæðarstýri. Þar að auki vinna servóin hvort gegn öðru þegar hallastýrispinninn er hreyfður.

Á mynd:
vinstri: tengdu þetta servó í hallastýrisrásina á móttakaranum
hægri: tengdu þetta servó í hæðarstýrisrásina á móttakaranum.

Delta vængur stilltur

1. Haltu niðri Down og Channel hnöppunum og kveiktu á sendinum til að komast í Kerfisgluggann (System mode).
2. Ýttu á Up eða Down hnappana þar til "WING" kemur í ljós vinstra megin í glugganum. Sú væng gerð sem valin er sést núna ofarlega fyrir miðju: NORM = venjulegur vængur; FLPER = flapastýri; DELT = Deltavængur.
3. Ýttu á (+) eða (-) hnappana til að velja Delta væng gerðina.

Athugaðu: Þegar deltavængur er settur upp, þá þarf að hafa sér servó fyrir hvort stýri.

4. Tengdu vinstra servóið í hallastýrisrásina (AILE) á JR móttakaranum þínum. Tengdu hægra servóið í hæðarstýrisrásina á móttakaranum.
5. Athugaðu að servóin hreyfist í rétta átt. Þegar hæðarstýrispinninn er hreyfður, þá ættu bæði stýrin að hreyfast saman upp eða niður. Notaðu servó snúning til að servóin fari í rétta átt.

Athugaðu: Hægt er að stilla vinstri og hægri hreyfingar rásanna sérstaklega með því að fara í aðgerðagluggann fyrir hreyfistillingar. Skoðaðu kaflann um hreyfistillingar fyrir frekari upplýsingar.

6. Þegar servóin hreyfast í rétta átt er hægt að stilla hversu mikið þau hreyfast, setja inn mismunandi hreyfingar, auka trimm og veldishreyfingar.
7. Í beinu framhaldi af athugasemdinni hér fyrir ofan, þá er vert að geta að hreyfing servóanna er sjálfkrafa minnkuð í 75% af mestu hreyfingu. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að servóin hreyfist lengra en þau eiga að gera. Ef ekki er farið varlega þegar hreyfingar eru stilltar, þá er möguleiki á að skemma servóin ef þau hreyfast of langt.

Athugaðu: Fínstillingar á hreyfingum stýranna ætti að gera með stillingum fyrir mismunandi hreyfingar (Dual-Rate) Skoðaðu kaflann um minsmunandi hreyfingar til að sjá hvernig það er gert. Það er líka hægt að stilla miðjustöðu stýranna hvors um sig með því að nota Auka trimm aðgerðina. Skoðaðu kaflann um auka trimmið til að fá frekari upplýsingar. Hægt er að stilla inn mismunahreyfingu (Differential) á X-378 sendinum þegar Delta vængur er valinn. Skoðaðu kaflann um mismunahreyfingar.

9. Til að stilla ádreparann ýtir þú á Down hnappinn.
10. Til að stilla stilla rofa fyrir Aux2/Bremsu rásina, ýtir þú á Up hnappinn.
11. Til að fara út úr væng gerða stillingunni ýtir þú á Down og Channel hnappana samtímis.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Gaui »

6.11 MISMUNAHREYFING Á HALLASTÝRUM (DIFFERENTIAL AILERON MIXING)

Á X-378 sendinum er hægt að stilla inn mismunahreyfingu á hallastýrin þegar flapastýri eða delta vængur eru valin. Mismunahreyfing á hallastýri er notuð til að gera hreyfingar stýranna rétta fyrir mismunandi gerðir flugvéla. Vegna þess að hallastýrið sem fer niður orsakar meira drag en það sem fer upp, þá er oft nauðsynlegt að að minnka niður hreyfinguna á báðum servóum frá sendinum. Þetta drag getur orsakað það að módelið geigar út úr beygjunni. Vegna þess að þessi geigun er óvelkomin í flestum, ef ekki öllum módelum, þá er best að koma í veg fyrir hana frá upphafi. Með mismunahreyfingum hallastýranna er hægt að minnka eða stöðva þessa geigun með því að takmarka hversu langt niður hallastýrin fara.

Athugaðu: Til að nota mismunahreyfingu hallastýra verður að stilla væng gerðina á flapastýri (flaperon) eða delta væng og sér servó á hvort stýri. Skoðaðu kaflann um val á væng gerðum til að fá frekari upplýsingar.

Mismunahreyfing hallastýra stillt

1. Kveiktu á sendinum.
2. Ýttu á Down og Channel hnappana samtímis til að komast í aðgerðahaminn.
3. Ýttu á Up eða Down hnappinn þar til "DIFF." birtist ofarlega til vinstri í aðgerðaglugganum. Ýttu á (+) eða (-) hnappana þar til sú mismunahreyfing sem þú vilt fá er komin. Stillisvið á mismunahreyfingu er frá 0% (NORM) til 100% (SPLIT). Myndirnar skýra hugsanlega hvernig mismunahreyfing hallastýra virkar.
Ef stillingin er höfð í 0%, þá hreyfast stýrin jafnt. Það er semsagt engin mismunahreyfing. Ef stillt er á 50%, þá fara hallastýri helmingi styttra niður en upp. Ef stillingin er sett á 100%, þá hreyfast stýrin ekkert niður og þau virka eins og svokölluð “split” hallastýri. Það þýðir að eina stýrið sem hreyfist er það sem fer upp. Hallastýrið sem annars ætti að fara niður hreyfist ekkert.
4. Til að komast í Snap Roll aðgerðina ýtir þú á Down hnappinn.
5. Til að komast í stillingar fyrir flaparofa ýtir þú á Up hnappinn.
6. Til að fara út úr stillingum á mismunahreyfingum heldur þú Down og Channel hnöppunum niðri samtímis.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Messarinn
Póstar: 936
Skráður: 1. Apr. 2005 12:44:30

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Messarinn »

Þetta er bara snilld hjá þér Gaui.
Eg á svona stýringu enn þarf svo sem ekki neinn leiðarvísi en samt gaman að lesa þetta hjá þér.
Mynd

Ég á lista á PDF formi til að Programera Ultra Stick ef þú vilt þýða hann Gaui?
Programming Guide for the JR X-378 for the Hangar 9 Ultra Stick

P.s. Búinn að senda þér hann
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar

A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Gaui »

Kíki á það.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Gaui »

5.11 ÁDREPARINN VIRKJAÐUR

Með þessari stillingu er hægt að virkja ádreparahnappinn framan á sendinum. Hafðu sendinn í kerfisham og veldu ádreparann (CUT) með því að ýta á Up eða Down hnappana og síðan ýta á (+) eða (-) hnappana til að kveikja eða slökkva á honum.

Ádreparinn er notaður til að færa inngjöfina tafarlaust í lægstu mögulegu stöðu og halda henni á meðan hnappnum er haldið inni. Þetta drepur þar með á mótornum eða stöðvar hann án þess að breyta trimstillingum fyrir inngjöfina.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Leiðbeiningar fyrir JR X-378

Póstur eftir Gaui »

6.16 KLUKKAN

Hægt er að stilla tvennskonar tímamælingu á X-378 sendinum: Niðurtalningu og Skeiðklukku.

Tíminn fyrir niðurtalningu er settur inn í 10 sekúnda skrefum upp að 35 mínútum. Hægt er að stilla klukkuna sérstaklega fyrir hvert módelminni. Þegar búið er að stilla og virkja klukkuna, þá er hægt að starta henni og stöðva með Channel hnappnum. Einnig er hægt að stöðva hana og starta með snap roll/trainer hnappnum framan á sendinum efst. Þegar verið er að nota X-378 sendinn sem master í kennsluham, þá virkar sá hnappur ekki til að stöðva eða starta klukkunni. [Hvað með þegar hann er notaður sem ádrepari? -- þýð.]

Athugaðu: Þegar klukkan er notuð til niðurtalningar, þá pípir hún þrisvar þegar 30 sekúndur eru eftir, tvisvar þegar 20 sekúndur eru eftir, og einu sinni á sekúndu fresti frá 10 niður í 0. Þegar tíminn er búinn, þá heyrist samfelldur tónn í eina sekúndu og síðan byrjar klukkan að telja upp. (+) merki kemur þá fyrir framan tímann.

Þegar klukkan er notuð sem skeiðklukka, þá telur hún upp að 44 mínútum 59 sekúndum og byrjar þá aftur á 0 og telur upp á nýtt.

Klukkan stillt

1. Kveiktu á sendinum.
2. Haltu niðri Down og Channel hnöppunum samtímis til að komast í aðgerðaham.
3. Ýttu á Up eða Down hnappana þar til "TIMER" kemur á gluggann.
4. Ýttu á Channel hnappinn til að velja hvers konar tímamælingu þú vilt fá: Slökkt (OFF), Niðurtalningu (D.TIMER) eða Skeiðklukku (TIMER)

Niðurtalningin stillt

Ef ýtt er á (+) hnappinn, þá hækkar tíminn um 10 sekúndur í hvert sinn upp að 59:50 [misræmi í leiðbeiningunum, ekki villa hjá þýðanda]. Ef ýtt er á Clear hnappinn, þá stillist niðurtalningin á 10:00, sem er sjálfgefin verksmiðjustilling.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara