Síða 1 af 1

Re: Alan ofvirki og vefsíðan hans.

Póstað: 7. Sep. 2011 16:04:17
eftir Agust
Welcome to Alan's Hobby, Model & RC FAQ Web Links

http://homepages.ihug.co.nz/~atong/

Þarna er gríðarlegt magn upplýsinga, jafnvel um einhvern fréttavef á Íslandi.

Sjálfsagt hefur verið vísað á þetta áður, en aldrei er góð vísa of oft kveðin.

Re: Alan ofvirki og vefsíðan hans.

Póstað: 13. Mar. 2012 11:29:49
eftir Jónas J
Vááá það er ekkert mál að gleyma sér þarna og detta inná fullt að flottum síðum. Hvort sem það tengist flugvélum, bátum, sub eða bara hvað sem er. Gott að gefa sér góðan tíma í að grúska í þessari síðu :)

Re: Alan ofvirki og vefsíðan hans.

Póstað: 13. Mar. 2012 18:13:45
eftir Björn G Leifsson
Alan þessi Tong er greinilega með hlekkjablæti á háu stigi.
Ég leitaði i safni hans að "Aurora" til þess að sjá hvað hann er með um norðurljósastýringuna og það kom upp 25 tilfelli.
Meðal annars þetta hér þar sem hann hefur safnað mýgrút af upplýsingum um þessa stýringu.
Varstu búinn að setja þennan hlekk í Aurora-safnið Ágúst?

Re: Alan ofvirki og vefsíðan hans.

Póstað: 13. Mar. 2012 21:24:23
eftir Gaui
[quote=Björn G Leifsson]... um norðurljósastýringuna ...[/quote]

Bara smá skot Dokksi góður, aurora þýðir dögun. Aurora var gyðja morgunsins.

http://en.wikipedia.org/wiki/Aurora_%28mythology%29

:cool:

Re: Alan ofvirki og vefsíðan hans.

Póstað: 13. Mar. 2012 23:56:40
eftir Björn G Leifsson
[quote=Gaui][quote=Björn G Leifsson]... um norðurljósastýringuna ...[/quote]

Bara smá skot Dokksi góður, aurora þýðir dögun. Aurora var gyðja morgunsins.

http://en.wikipedia.org/wiki/Aurora_%28mythology%29

:cool:[/quote]

Norðurljós heita á fínni útlensku: Aurora Borealis, oft stytt: Aurora.
Eins og þarna kemur fram eru þau nefnd eftir Auroru, gyðju dögunarinnar

Maður er ekki Wesserbisser fyrir ekki neitt :D

Nú og suðurljos eru lika til: Aurora Australis