Þyrlur á snjóþrúgum

Kanntu brögð og brellur sem fleiri hafa gagn af?
Svara
Passamynd
scuba
Póstar: 32
Skráður: 7. Júl. 2006 00:34:58

Re: Þyrlur á snjóþrúgum

Póstur eftir scuba »

Ég útbjó að gamni mínu snjóþrúgur á Hawkinn minn til að hafa meiri möguleika á því að fljúga í vetur.
Þetta hentar vel þar sem er mjúkur snjór, hátt gras eða ójafnt undirlag.
Fór í prufuflug á laugardaginn 25 nóvember og gekk vel.

Mynd

Ef einhverjir vilja nýta þessa hugmynd þá er uppskriftin hér:
1. 20 mm rafmagnsrör
2. Einangrun fyrir 20 mm vatnsrör
3. Einangrunarlímband
4. 4 stk. plast dragbönd

Keypti þetta allt í Húsasmiðjunni og kostar þetta allt aðeins um 300 kr.
Þetta dugir á 4 þyrlur og því kostar þetta aðeins 75 kr. pr. þyrlu ef menn slá saman :-)
Svara