Jæja árið er farið að styttast verulega í annan endann og þið vitið hvað það þýðir! Samantekt á því helsta sem var að gerast á árinu á innbundnu formi í máli og myndum. Þetta verður tíunda árið sem tímaritið kemur út!
Þeir sem áhuga hafa á að næla sér í eintak eru vinsamlegast beðnir um að senda mér línu, sverrirg hjá gmail.com, nú eða staðfesta það hér að neðan. Tómas Jónsson mun sem fyrr taka við pöntunum og dreifa tímaritinu norðan heiða.
Áskrifendur geta setið rólegir heima og beðið en munu fá staðfestingarhnipp frá mér.
Það fer allt hækkandi, prentun og flutningur á blaðinu er því miður ekki undantekning frá því.
Verðið verður því 3.000 kr í ár eftir að hafa verið óbreytt síðan 2019, og eru menn beðnir um að millifæra fyrir kaupunum.
Vinsamlegast gangið frá pöntun sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir miðnætti að kvöldi 1. nóvember nk. og vinsamlegast látið félaga og vini vita sem þið haldið að hafi áhuga á að fá glóðvolgt eintak í hendurnar á aðventunni. Nú eða kaupið annað eintak til að gleðja einhvern!
Áhugasamir geta stytt sér stundir við lestur eldri eintaka hér á vefnum.
Tímaritið Flugmódelárið 2024
Tímaritið Flugmódelárið 2024
Icelandic Volcano Yeti
Re: Tímaritið Flugmódelárið 2024
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér eintak.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Tímaritið Flugmódelárið 2024
Tímaritið komið úr prentun og geta þeir sem pöntuðu eintak mætt á Hamranesið um klukkan 14 á morgun að nálgast sitt eintak.
Gerum svo ráðstafanir fyrir þà sem eiga ekki heimangengt á morgun.
Gerum svo ráðstafanir fyrir þà sem eiga ekki heimangengt á morgun.
Icelandic Volcano Yeti