Easter Slope 2024

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11609
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Easter Slope 2024

Póstur eftir Sverrir »

Við Elli skelltum okkur til Danmerkur í fyrravor, bæði í æfingabúðir eftir langan vetur en einnig til að taka þátt í Easter Slope 2024. Keppnin var haldin 23. og 24. mars og náðist að fljúga 9 umferðir. Við vorum í Kallerup fyrri daginn í sæmilegasta vindi en þegar leið á daginn gekk á með skúrum. Seinni dagurinn byrjaði full rólega í Hamborg brekkunni en eftir því sem leið á þá tók Kári við sér. Árangurinn var lala, enda svo sem ekki mikið verið flogið síðan sumrinu áður. Ég endaði í 31. sæti og í því 10. í bestu umferðinni og Elli í 33. sæti og 12. í bestu umferðinni.

Hægt er að sjá nánari útlistun á F3XVault > https://f3xvault.com/?action=event&func ... t_id=3080

Icelandic Volcano Yeti
Svara