Síða 1 af 1
Seltjörn - 2.júní 2020 - Flotflugkoma FMS
Póstað: 2. Jún. 2020 23:15:06
eftir Sverrir
Ágætis veður var á flotflugkomunni í kvöld, dálítið napurt en ekkert sem góður skjólfatnaður klæddi ekki af mönnum. Fínasta mæting var en 5 flotvélar mættu til leiks og af þeim fóru 4 í loftið en þó ekki nema helmingurinn á vatninu. Formaðurinn bauð svo upp á COVID-19 veitingar sem hurfu eins og dögg fyrir sólu.
Re: Seltjörn - 2.júní 2020 - Flotflugkoma FMS
Póstað: 2. Jún. 2020 23:20:35
eftir Sverrir
Sigurður Hauksson leit líka við eftir langt hlé og vorum við að reyna að rifja upp hvenær
rafmagnsþyrlan góða mætti á fund hjá Þyt.
Reyndust ekki vera nema 20 ára síðan eða þann 4. maí 2000!
Myndir: Ágúst H. Bjarnason
Re: Seltjörn - 2.júní 2020 - Flotflugkoma FMS
Póstað: 6. Jún. 2020 23:29:34
eftir maggikri
Myndir