Síða 1 af 1

Sandskeið - 22.ágúst 2020 - Íslandsmótið í hástarti

Póstað: 22. Ágú. 2020 19:51:28
eftir Sverrir
Fjórir flugmenn og 4 aðstoðarmenn mættu til leiks upp á Sandskeið í morgun í þessari líka brakandi blíðu! Það fór sem fór að ekki var veður í hang svo þá var búið að ákveða að reyna við Íslandsmótið í hástarti sem halda átti í júlí sl. Eftir að hafa vegið og metið veðurhorfur þá var ákveðið að setja brautina upp á N/S brautinni þar veðurspáin benti til þess að vindur yrði það hægur að fullskala svifflugið myndi nota V/A brautina. Gekk það eftir þó örlítill hliðarvindur hafi komið með hafgolunni upp úr hádeginu.

Dagurinn gekk að mestu áfallalaust fyrir sig en Jón tók sem betur fer með sér tvær vélar þar sem bilun reyndist vera í annarri þeirra hjá honum og svo slitnaði spilvírinn hjá okkur í einum af síðustu störtum dagsins en Hannes og Elli voru fljótir að redda honum saman aftur svo hægt væri að klára mótið.

Sérstakar þakkir fá Árni, Einar Páll, Erlingur og Hannes fyrir að aðstoða við keppnishaldið.
Erlingur var með myndavélin á lofti svo eflaust eigum við eftir að sjá eitthvað frá því þegar frá líður.

Eftir 4 umferðir, þar sem þeirri lökustu var sleppt, fóru leikar sem svo.*
urslit.gif
urslit.gif (4.72 KiB) Skoðað 1601 sinni
* Hrágögnin eru neðst í myndapakkanum ef einhverjir vilja spreyta sig á útreikningum.

Það var nóg að gera hjá félögum okkar í sviffluginu og gaman að sjá nýliðunin(unga kynslóðin) er í góðum gír hjá þeim og svo var nánast stanslaust spiltog hjá þeim frá því rétt fyrir hádegi og fram eftir degi. Fær Svifflugfélagið kærar þakkir fyrir afnot af svæðinu og er ómetanlegt að geta fengið aðgang að Sandskeiðinu hjá þeim fyrir mótshaldið.

IMG_1742.jpg
IMG_1742.jpg (214.46 KiB) Skoðað 1601 sinni

IMG_1743.jpg
IMG_1743.jpg (139.08 KiB) Skoðað 1601 sinni

IMG_1744.jpg
IMG_1744.jpg (233.89 KiB) Skoðað 1601 sinni

IMG_1745.jpg
IMG_1745.jpg (272.13 KiB) Skoðað 1601 sinni

IMG_1746.jpg
IMG_1746.jpg (185.71 KiB) Skoðað 1601 sinni

utreikningar.gif
utreikningar.gif (25.74 KiB) Skoðað 1599 sinnum

IMG_1749.jpg
IMG_1749.jpg (172.33 KiB) Skoðað 1601 sinni

Re: Sandskeið - 22.ágúst 2020 - Íslandsmótið í hástarti

Póstað: 24. Ágú. 2020 21:47:57
eftir Sverrir
Nokkrar myndir frá Ella. 8-)