Síða 2 af 2

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2020

Póstað: 21. Nóv. 2020 16:11:32
eftir Sverrir
Tímaritin detta í hús eftir helgi og fara í dreifingu í framhaldi af því, minni þá sem eiga eftir að greiða að ganga frá greiðslu. 8-)

Mynd

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2020

Póstað: 23. Nóv. 2020 19:30:55
eftir Sverrir
Blöðin komin glóðvolg í hús! Pakki lagður af stað til Tomma sem mun dreifa þeim á fimmtudaginn kemur fyrir norðan, ef það verður ekki ófært. Nokkur eintök fara svo á Suðurnesin seinni partinn á morgun. Ég verð svo út á Hamranesi milli 13-14 laugardaginn 28. nóvember en annars getið þið heyrt í mér ef þið verðið á ferð í Hafnarfirðinum fyrir þann tíma og nálgast eintak hjá mér.

Örfá óseld eintök til fyrir áhugasama. ;)

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2020

Póstað: 18. Des. 2020 17:25:37
eftir Sverrir
Fyrirsætan á forsíðunni á leið í sitt fyrsta flug.