Auðar brautir í febrúar!
Jæja þá þarf allavega ekki stór dekk eða skíði til að komast í loftið
EDF rafmagnsknúin SkySword fékk viðrun í þéttri austan-áttinni.
Hamranes - 7.febrúar 2021
Hamranes - 7.febrúar 2021
- Viðhengi
-
- Resizer_16127167888592.jpg (390.46 KiB) Skoðað 587 sinnum
-
- Resizer_16127167888591.jpg (389.62 KiB) Skoðað 587 sinnum
-
- Resizer_16127167888590.jpg (249.88 KiB) Skoðað 587 sinnum
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Flugmódelfélag Suðurnesja
Re: :Hamranes - 7.febrúar 2021
Hér að sunnan er fátt um veðurfréttir og enginn SkySword í loftinu.
En það bar til tíðinda hér í gær að gefin var út veðurviðvörun vegna yfirvofandi kuldalægðar.
Þegar við svo settumst út í morgunmat var hitinn kominn niður í 16°c svo kuldaskræfurnar frá Íslandi fóru í peysur!
Í fréttum var sagt frá því að aldrei hefði verið skráður lægri hiti í háloftastöðinni við Teide, "hæsta fjall á Spáni" sem auðvitað er ekkert á Spáni, þeir bara monta sig af því að Tenerife tilheyrir Spáni.
Sem sagt skráð frost -4.4°C í nótt. Öllum vegum í þjóðgarðinn (á hásléttunni) var lokað vegna hugsanlegrar hálku.
Íslendingar fara nú ekkert af hjörunum við svona veðurspár, en hér er þetta sjaldgæft og innfæddir taka þessu mjög alvarlega.
Tók flotta mynd af Teide í fjarska með hvítan koll.

Barasta