Hún nálgast - 80 dagar til stefnu!
Svona var staðan fyrir 10 árum síðan:
Leiðin að flugkomu FMFA 2021
Re: Flugkoma FMFA 2021
Svona leit þetta út árið 2012. Veðrið var ekki að spila neitt sérstaklega með en Steve Íslandsvinur Holland og föruneyti lék hinsvegar við hvern sinn fingur
Re: Flugkoma FMFA 2021
Svona var umhorfs árið 2013
Það ár var líka brunað vestur á Patró á eftirminnilega flugkomu:
Það ár var líka brunað vestur á Patró á eftirminnilega flugkomu:
Re: Flugkoma FMFA 2021
Svona fór þetta fram árið 2014:
Re: Flugkoma FMFA 2021
Eins og sums staðar hefur verið pískrað í reykfylltum bakherbergjum verður nú opinberað og gjört kunnugt, að þátttakendum í Flugkomu FMFA verður boðið upp á að renna í gegnum ákveðinn listflugsferil. Við byrjum ákaflega rólega á 5 æfingum sem er hægt að fljúga á nánast hverju sem er en þó skal tekið fram að Bixler og vélar með V-stéli ráða síst við þetta. Ferillinn er byggður á svokölluðum Basic Known æfingum frá International Miniature Aerobatic Club. Það kann þó að vera að við snúum einhverjum æfingum til að ná betra flæði í flugið - þetta er svona í startholunum. Það er náttúrulega engin skylda að taka þátt en það er mjög gaman að fljúga svona fyrirfram ákveðna ferla um leið og það gerir mann að agaðri flugmanni
Frekari upplýsingar um IMAC má sjá hér: http://www.mini-iac.org/
Koma svo - enga frammistöðuangist núna - allir á völlinn eða í herminn að æfa!
Með kveðju,
Árni Hrólfur
Frekari upplýsingar um IMAC má sjá hér: http://www.mini-iac.org/
Koma svo - enga frammistöðuangist núna - allir á völlinn eða í herminn að æfa!
Með kveðju,
Árni Hrólfur
Re: Flugkoma FMFA 2021
Líst vel á þetta en sé ekki betur en flæðið sé nokkuð ljúft þarna í gegn.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Flugkoma FMFA 2021
Já, ég sé það núna - snéri þessu eitthvað við í hausnum á mér, sennilega vegna þess að ég ruglaðist á röðinni þegar ég var að fljúga þetta um daginn. Þá endar maður nefnilega í einhverri vitleysu
Svo má auðvitað hafa hjá sér aðstoðarmann sem segir hver næsta æfing er og ég mæli reyndar með því
Svo má auðvitað hafa hjá sér aðstoðarmann sem segir hver næsta æfing er og ég mæli reyndar með því
Re: Flugkoma FMFA 2021
Á því herrans ári 2015 var blíðuveður:
Re: Flugkoma FMFA 2021
Nú nálgumst við nútímann - 2016 var líka ágætisveður og mikið flogið
Re: Flugkoma FMFA 2021
Síðast breytt af Sverrir þann 17. Júl. 2021 18:21:51, breytt 1 sinni.
Ástæða: Laga YT tengil
Ástæða: Laga YT tengil